Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ertu með lélegt úthald og glímir jafnvel depurð? Langar þig til að passa aftur í gömlu fötin þín? Leiðist þér í líkamsræktarstöðvum? Þá er svarið hér að neðan.

Margir hafa komist að raun um að gönguferðir um fjöll og flatlendi á Íslandi eru einhver besta heilsutrækt sem kostur er á. Ferðafélag Íslands heldur úti fjölmörgum gönguhópum af ýmusm áreynslustigum sem allir hafa það að markmiði að efla fólk líkamlega og andlega og auka þannig lífsgæði þess.

Fyrsta og Næsta skrefið er gönguhópur sem starfað hefur í sjö ár. Hátt í þúsund manns hafa tekið þátt í námskeiðum hópsins frá upphafi og fjölmargir fundið gleðina í því að ganga á fjöll og finna fegurðina í hreyfingunni og fræðslunni sem fylgir göngunum. Kynningarfundur Næsta skrefsins verður á Facebook 30. ágúst.

Lagt er upp með það í göngunum að fræða fólk og skemmta í leiðinni. Fastur liður er æfingakerfið Haukurinn og söngæfing. Jólalögin eru þannig æfð tímanlega fyrir aðventuhátíðina í skóginum undir Úlfarsfelli.

Næsta skrefið hefur göngu sína í september og lýkur verkefninu í desember. Alls er boðið upp á 28 göngur um helgar og á fimmtudögum þegar gengið er á Úlfarsfell. Lagt er upp með að ganga á hraða sem hentar öllum í hópnum og byggja smám saman upp þol.

Fyrsta fjallið sem gengið verður á er Mosfell 11. september en síðan taka ævintýrin við, eitt af öðru inn í haustið. Gosstöðvarnar verða heimsóttar sem og Hengillinn auk fjölda fjalla, öll létt og þægileg. Í desember verða svo allir sem endast út verkefnið komnir í það form sem stefnt er að.

- Auglýsing -

Umsjónarmenn Næsta skrefsins eru Reynir Traustason og Guðrún Gunnsteinsdóttir.

Skráning er í fullum gangi á vef Ferðafélags Íslands. Aðeins 30 manns fá inngöngu.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -