Bergvin Oddsson, sem stundum kallar sig Beggi blindi, segir að lélegasta ferðaþjónusta fatlaðra landsins sé í Vestmanneyjum. Aðeins stendur sú þjónusta til boða frá 07:30 til 17, virka daga.
Bergvin Oddsson skrifar pistil á Tigull.is sem er fréttavefur í Vestmannaeyjum. Þar gerir hann ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk að umræðuefni. Segir hann þá þjónustu eina af grunnþjónustum sveitarfélaganna. Segir hann að í nær öllum sveitarfélögum landsins sé þessi þjónusta veitt á forsendum þeirra sem notar þjónustuna en ekki á forsendum sveitarfélagsins sem bíður þjónustuna. Segir hann Vestmannaeyjar standa sig hvað verst hvað þetta varðar.
„Í Vestmannaeyjum hefur um árabil þessi þjónusta aðeins staðið til boða frá kl 07:30 til 17 virka daga. Já virka daga. Fatlaðir þurfa að sækja þjónustu, afþreyingu og jafnvel vinnu á kvöldin og um helgar. En í Eyjum er þjónustan veitt á forsendum sveitarfélagsins en ekki einstaklinganna sem þurfa á henni að halda.“
Segist hann hafa talað fyrir því á síðustu árum að bærinn „breyti um takt og veiti almennilega ferðaþjónustu,“ en segist hafa talað fyrir daufum eyrum. Segir hann að þjónusta í Eyjum sé gjaldfrjálst en í flestum öðrum sveitarfélögum sé innt af hendi lág upphæð fyrir þjónustuna, virði hálfs eða fulls fargjalds í strætó.
„Þegar t.d félagsmenn Blindrafélagsins á höfuðborgasvæðinu eru spurðir hvaða þjónusta skiptir þá mestu máli svara nær 90% félagsmanna að ferðaþjónustan skipti mestu máli. En þar er þjónustan í boði frá 07-24 alla daga vikunnar.“