Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Björguðu 18 eftirlegukindum úr afrétt: „Þetta er þolinmæðisvinna á þessum tíma náttúrulega“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Föstudaginn síðastliðinn bjargaði Andrés bóndi í Tungu í Gönguskörðum við annan mann, sautján kindum úr Vesturfjöllum og koma þeim til byggða.

Kindurnar voru í ágætu ásigkomulagi þrátt fyrir fannfergi og frost. Nokkrum dögum áður hafði Andrés náð að staðsetja féð og nappa einu lambi og taka það heim á leið.

Það er Feykir sem sagði frá þessari fræknu björgun á fénu.

Á fimmtudaginn fyrir viku fór Andrés Helgason bóndi í fjallaleiðangur á beltahjóli sínu í þeirri von að hann næði að hnika fénu nær byggð. Það tókst honum eins síns liðs en hann kom fénu, sem hafðist við í vestanverður Stakkfellinu til móts við Gvendarstaði, yfir í Kálfárdal. Daginn eftir bættist honum liðsauki er Birgir Hauksson bóndi í Valagerði hjálpaði honum að koma kindunum heim í Tungu.

Sáttir bændur
Ljósmynd: Kári Gunnarsson

„Þetta gekk í raun og veru bara vel. Þetta er þolinmæðisvinna á þessum tíma náttúrulega en ég var svo heppinn að það var þarna ein ær sem að fór vel á undan og fór í slóðina á hjólinu. Þetta tók bara tíma,“ sagði Andrés í samtali við Feyki og tók fram að ærnar hafi verið í mjög góðu standi enda nógur hagi þar sem þær dvöldu. „Það er mjög gott lag á þeim, það var ekki vandamálið. Það eina sem að var var að klakabrynja var komin í þær sem var til trafala og þurfti að skera úr til að létta á þeim, sérstaklega í einu lambi.“

Kindurnar sóttar
Ljósmynd: Kári Gunnarsson

Samkvæmt Feyki voru flestar kindurnar í hópnum úr Skagafirðinum en ein tvílembd er frá Bakkakoti í Austur-Húnavatnssýslu. Þá voru níu þeirra úr Hegranesinu, sex frá Ríp og tvílemba frá Svanavatni. Aukreitis var tvílemba frá Halldórsstöðum og lamb frá Glaumbæ. Sjálfur átti Andrés tvær ær. „Þannig að þetta kemur úr sitt hverri áttinni sagði Andrés og fullyrti að hann hefði ekki náð þessu ef hann hefði ekki haft fjórhjólið sem er á beltum, líkt og björgunarsveitir nota enda var færi þungt.

- Auglýsing -

Ekki segist Andrés viss um það hvort fleira fé leynist í Vesturfjöllum.„Ég veit ekki um neitt en það vantar enn og ekki fundist ennþá hvernig sem það er. Auðvitað vantar alltaf eitthvað sem aldrei kemur, getur farið ofan í eða orðið afvelta og alla vega. En þegar vantar samstæður, ær með lömbum, þá heldur maður frekar í vonina að það sé einhvers staðar og finnist.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -