Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Lið Vopnafjarðar fór í fjórðungsúrslit í Norðurlandamóti í Lego-þrautum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dodici, Lego-lið Vopnafjarðarskóla komst í fjórðungsúrslit á Norðurlandamóti í Lego-þrautum sem haldið var í Osló um helgina.

Í frétt Austurfréttar segir að árangur Vopnafjarðarliðsins sé eftirtektarverður í ljósi þess að í heild tóku 49 lið þátt í keppninni. Hin liðin komu frá Svíþjóð og Noregi en Dodici vann sér þátttökurétt með því að sigra Íslandskeppnina annað árið í röð.

Fyrirkomulag keppninnar úti var álika og í landskeppninni. Kynnti liðið hugmyndir sínar  fyrir dómnefnd að orkulausnum í heimabyggð en þær fólust í vélrænu loftræstikerfi, gólfmottum sem framleiða rafmagn sem og hjólum undir skólaborðum.

Að vanda var hápunktur keppninnar lausn á þrautabraut með vélmenni sem búið var til með kubbum og Lego-tækni. Stig voru gefin fyrir bæði frammistöðu vélmennisins og hugmyndina að baki forrituninni. Þá voru veitt verðlaun fyrir liðsheild.

Segir í frétt Austurfréttar að keppnin hafi verið haldin í höfuðstöðvum Equinor sem er orkufyrirtæki norska ríkisins sem varð til er Statoil sameinaðist olíu og gasdeild Norsk Hydro. Það var liðið RoadSnack frá Norður-Troms sem bar sigur úr býtum í keppninni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -