Mygla fannst í enn einu skólahúsnæðinu nýlega en Grunnskólinn á Ísafirði er nýjasta fórnarlamb myglunnar.
Samkvæmt bb.is voru gerðar rakamælingar nýlega í kennslustofum 211-213 á annarri hæð gula hússins í Grunnskólanum á Ísafirði. Niðurstöðurnar sem fengust úr þeim mælingum gáfu tilefni til frekari athugunar og voru því tekin sýni til að kanna hvort mygla leyndist þar. Niðustöðurnar sýndu að mygla er að finna í öllum kennslustofunum sem athugað var með, mismikil þó.
Hefur verið ákveðið að rýma stofurnar á ganginum og verða þær ekki notaðar fyrr en framkvæmdum lýkur.
Ráðas á í framkvæmdir til að uppræta myglu eins og fljótt og hægt er en þykir einsýnt að þær verði umfangsmiklar og er óvíst hver verkhraðinn verður, á þessu stigi málsins, vegna skorts á iðnaðarmönnum. Hafin er vinna við að skoða þá möguleika sem í boði eru fyrir skólastarfið næsta haust.
Samkvæmt bb.is er aðal verkefnið nú að koma nemendum 6. og 7. bekkjar fyrir í öðrum rýmum skólans en í dag verða nemendurnir heima, á meðan verið að ráða fram úr vandanum.
Boðið verður til upplýsingafundar fyrir foreldra á næstu dögum.