Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Sæþór var enn að vakna er snjóflóð féll á húsið:„Svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það tók okkur stundarkorn að gera okkur grein fyrir hvað hafði gerst enda vorum við ekki alveg vöknuð en svo heyrðum við bara neyðaröskrin og lætin frá neðri hæðinni strax í kjölfarið,“ sagði Sæþór Sigursteinsson, íbúi í öðru af þeim tveimur fjölbýlishúsum í Neskaupstað sem urðu fyrir snjóflóði snemma í morgun en hann var í viðtali við Austurfrétt.

Fram kemur í frétt Austurfréttar að það sé samdóma álit fólks sem miðillinn ræddi við, að enn verr hefði farið ef snjófljóðin hefðu komið örlítið síðar. Bæjarbúar voru langflestir að vakna þegar flóðin komu og fáir á ferli útivið.

„Það var nú ekki svo að ég áttaði mig á hvað væri á seyði og ekki heyrði ég neitt fyrr en flóðið skellur á húsinu með miklum dynk,“ sagði Sæþór í samtali við Austurfrétt. „Maður var svona að rísa úr rekkju og enn með stírur í augum svo að mér var brugðið þegar höggið kom á húsið en svo komu þessi miklu neyðaröskur af neðri hæðinni. Ég glaðvakna, spóla mig í föt í einum grænum og út á stigagang þar sem ég geri mér loks grein fyrir hvað átt hefur sér stað. Þar fylltist nánast öll íbúðin af snjó.“

Enginn hlaut alvarleg meiðsl er snjóflóðin féllu snemma í morgun en allnokkrir þurftu að leita læknisaðstoðar vegna minniháttar meiðsla. Einn þeirra var áðurnefndur Sæþór en hann skarst nokkuð á kálfa vegna glerbrota í snjónum fyrir utan húsið er rýmingin var gerð.

„Ég varð fyrir því að fá stærðar glerbrot beint í kálfann á mér þegar við vorum að rýma húsið og ég þurfti að drífa mig og láta sauma tvö spor í kálfann. Það var engin leið að sjá slíkt í snjónum þegar út var komið því það var brak út um allt.“

„Í sjálfu sér vorum við í þessu húsi heppin að því leytinu að flóðið féll fyrst á fjölbýlishús hér rétt fyrir ofan okkur og þar náði flóðið vel upp á aðra hæð þess húss. Við hér sluppum við það og mildi að enginn hér á neðri hæðinni hafi til dæmis verið kominn í eldhúsið og staðið fyrir innan gluggann þegar þetta ríður yfir. En við auðvitað töluvert heppnari en fólkið í blokkinni hér utar því snjóflóðið náði ekki aðeins upp á aðra hæð þar heldur sópaði niður bílum kringum það hús og þeir bílar komu í runnu með snjónum hér fram hjá okkar byggingu og stoppuðu hér rétt fyrir neðan á steyptum kanti,“ sagði Sæþór við Austurfrétt.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -