Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Við þekkjum hugsanlega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálparhönd með bros á vör.

Þetta kann að tengjast því að heilinn losar meira af efninu oxýtósíni í takt við hækkandi aldur, ef marka má nýlega rannsókn.

Efni þetta sem gjarnan er kallað „ástarhormónið“, virðist gera fólk sáttara við lífið og tilveruna, auk þess að reynast öðrum hjálplegra.

Ástarhormón

Vísindamenn hafa raunar lengi haft vitneskju um að oxýtósín tengist kærleika, hjálpsemi og gleði. Þá hefur tölfræðin jafnframt leitt í ljós að eldra fólk er hjálplegra en þeir yngri, ver meiri tíma í sjálfboðastarf og lætur meira af hendi rakna til hjálparstarfs.

Oxýtósín er hormón sem líkaminn framleiðir.

Hormónið kallast oft „ástarhormónið“, sökum þess að við framleiðum það m.a. þegar við föðmum aðra, kyssum, gefum brjóst eða stundum kynlíf.

- Auglýsing -

Oxýtósín er framleitt í undirstúku miðheilans.

Hormónið færir okkur hamingju- og vellíðunartilfinningu og er sérlega mikilvægt þegar fólk myndar náin tengsl og tengist öðrum nánum böndum.

Konur eru með meira magn af oxýtósíni í líkamanum en karlar og efnið kemur oft við sögu í tengslum við brjóstagjöf og fæðingar.

- Auglýsing -

Rannsóknir gefa til kynna að oxýtósín stuðli að því að við verðum ástfangin, þannig að þeim ástfangna finnst hinn aðilinn vera meira aðlaðandi en nokkur annar.

Gerðar voru rannsóknir á 100 þátttakendum á bilinu 18 til 99 ára sem leiddu í ljós að eldra fólk framleiðir svo sannarlega þó nokkuð meira magn af þessu heilaefni ástarinnar en aðrir.

Í rannsókninni var þátttakendunum sýnt myndband af föður sem er að segja frá syni sínum sem hefur veikst af krabbameini. Vísindamennirnir tóku blóðsýni úr þátttakendunum fyrir og eftir áhorf myndbandsins.

Vísindamennirnir drógu jafnframt þá ályktun að þátttakendur með hærra magn af oxýtósíni í blóðinu væru líklegri til að gefa fé til krabbameinsrannsókna en þeir þátttakendur sem greindust með minna magn.

Hjálpsemi hrindir af stað jákvæðu ferli

Þátttakendurnir voru enn fremur beðnir um að svara fimm spurningum um hversu sáttir þeir væru í lífinu. Eldra fólk var að öllu jöfnu sáttara með lífið en þeir yngri og þá einkum eldra fólk sem hafði yfir að ráða miklu magni ástarhormónsins.

Vísindamennirnir að baki skýrslunni leggja áherslu á að þeir geti ekki sagt fyrir víst hvað sé orsök og hvað afleiðing: mikið magn af oxýtósíni, hjálpsemi eða sátt við lífið.

Í eldri dýrarannsóknum töldu vísindamenn sig hafa fundið sönnun fyrir því að oxýtósín væri hvetjandi til að liðsinna öðrum og að hjálpsemi léti heilann framleiða meira af oxýtósíni.

Með þessu móti verður oxýtósín, ánægja með lífið og hjálpsemi í garð annarra að jákvæðu ferli, þar sem allir þrír þættirnir leiðast meira af hinum tveimur þáttunum.

Vísindamenn að baki rannsókninni hyggjast fyrir vikið rannsaka hvort náungakærleikur þeirra gráhærðu kunni að stafa af auknu oxýtósínmagni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -