Föstudagur 26. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

16 ára sonur Helenu lagður í hræðilegt einelti: „Er kallaður nauðgari og þeir hóta að drepa hann“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ókei núna læt ég í mér heyra og núna segi ég STOPP!!!! Leyfið syni mínum að vera hann sjálfur. Einelti er ofbeldi sem aldrei er réttlætanlegt. Einelti getur verið með baktali og sögusögnum, særandi orðbragði og niðurlægingu, frelsissviptingu, eignatjóni og líkamsmeiðingum. Sonur minn, já minn yndislegi, blíði, fyndni og góði sonur sem vill öllum vel, hefur orðið fyrir einelti síðustu 5 árin Og fer þetta einelti allt fram á netinu og ef þeir sjá hann úti er hann tekinn og laminn og niðurlægður. Þetta er ekkert nema FRELSISSVIPTING fyrir hann,“ skrifar Helena Queen í átakanlegri færslu á Facebook um skelfilegt einelti sem sonur hennar er lagður í.

Helena og fjölskylda búa í Breiðholti en sonur hennar stundaði nám við Borgarholtsskóla en vinnur nú í Fjölsmiðjunni.

„Ég er algjörlega komin með nóg. Það eru stofnaðir fake aðgangar á samfélagsmiðlum og þar er þessi hópur af krökkum að plokka hann þannig til að ná honum og til að geta lamið hann. Þessir krakkar eru að búa til sögur og það er virkilega ljótar sögur um hann sem eru ósannar og hann er komin með orð á sig.

Virkilega ljótt ORÐ sem hefur ekki við rök að styðja. Já ég skal segja ykkur, hann er kallaður NAUÐGARI  – Þessi yndislegi glaði strákurinn minn sem hefur alltaf verið glaður, brosandi, hlæjandi með húmorinn sinn í botni er farinn að draga sig inn í skel og farinn að verða rosalega kvíðinn og virkilega þunglyndur og dapur og á virkilega erfitt með svefn og passar að allt sé lokað og læst allan sólarhringinn heima hjá okkur;
Þetta er ekkert nema FRELSISSVIPTING.“

Helena er ekki bara að segja einhliða frásögn af hryllingnum sem sonur hennar verður fyrir á degi hverjum:

„En ókei, ég veit vel að sonur minn á erfitt með samskipti oft, og sendir skilaboð á netinu sem hann gerir sér alls ekki grein fyrir að sé við hæfi, hann er með sínar greiningar og hann er lagður í neteinelti vegna þess, hann kann oft ekki mörkin.
Það er endalaust verið að gera grín af honum og sagt við hann: Ertu með einhverfu – og blah blah blah. Hann hefur misst marga vini út frá þessu einelti, þessir krakkar eru að reyna að rústa hans lífi.

- Auglýsing -

Hann meðal annars flosnaði upp úr framhaldsskóla vegna stanslauss áreitis frá krökkum úr skólanum, hann fór að vinna og þar eru sögusagnir komnir þar líka frá krökkum sem eru að reyna að skemma hans mannorð á vinnustaðnum.“

Helena segir frá því að hún hafi frétt frá vinkonu sinni „að það er víst búið að stofna aðgang á TikTok og þar eru birtar myndir af hvar við búum og nafnið á mér og pabba hans og ýmislegt fleira.

Í síðustu viku þurfti ég að fara á sóttvarnarhótelið og dvelja þar með litlu stelpuna mína sem greindist með covid, en vegna ástandsins heima fyrir með áreitið frá krökkunum í garð sonar míns, þá þurfti ég að fara heim.

- Auglýsing -

Það var komið og hent grjóti í rúðurnar heima hjá okkur og fékk ég símtal frá nágranna mínum sem upplýsti mig um það. Svo er eldri systir hans að fá skilaboð um það, að ef hún borgar ekki ákveðna upphæð þá dreyfir sá aðili á netið og í eigin persónu að bróðir hennar sé perri.“

Hún bætir við:

„Svo gerðist það fyrir nokkrum dögum síðan að besti vinur sonar míns var tekinn og laminn, einfaldlega bara fyrir það að vera vinur hans; sonur minn kennir sjálfum sér um það ofbeldi sem vinur hans varð fyrir.

Ég þurfti að láta hann eyða út snapchatinu sínu í gær vegna endalauss áreitis, þeir einfaldlega stoppa ekki. Ég fékk að sjá virkilega ljót skilaboð sem voru látin falla í þessari grúbbu.

Til dæmis sögðust þeir hóta að drepa hann og vilja hann bara dauðan, hann er ógeðslegur, hann er þroskaheftur, hann sé veikur að geði, hann er nauðgari, hann sé perri og þeir ætla ekki að hætta fyrr en hann er dauður.

Þessi hópur er búinn að upplýsa hann um það að þegar hann mun fara út úr húsi þá mun hann verða lamin mjög illilega og hafa þeir hótað honum líka lífláti.

Helena bendir á að „meðal annars eru þeir búnir að dreifa fleiri videóum af fleiri fórnalömbum þar sem miklar líkamsmeiðingar eru í gangi. Svo á ég videó af því þegar sonur minn var tekinn fyrir og laminn illilega en sem betur fer var hann með hjálm þar sem hann var á vespunni sinni þegar þetta atvik átti sér stað, þeir rifu hann af vespuni og þeir spörkuðu svo heiftarlega í hausinn á honum að þetta var frekar mjög brutal sjón að sjá – og þessir krakkar eru enn þá að deila þessu videói og gera grín og hlæja af honum og þeim finnst þetta virkilega fyndið.

Þessir krakkar níðast á þeim einstaklingum sem fitta ekki inn í normið. Einelti er samfélagsmein sem okkur öllum kemur við og allir eiga að taka alvarlega, einelti er sár staðreynd, en þrátt fyrir það sannleikur Einelti er sálarmorð og ekkert annað en sálarmorð.

Þetta er komið gott, leyfið syni mínum að fá frið og leyfið honum að vera hann sjálfur.

Leyfum ekki einelti að þrífast í okkar samfélagi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -