Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Allir reikningar ríkisstofnana og ríkissjóðs orðnir rafrænir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Allir reikningar frá ríkissjóði og ríkisstofnunum eru orðnir rafrænir og gildir það frá og með 1.maí. Markmiðið er að lækka viðskiptakostnað allra aðila, nútímavæða viðskiptaumhverfi ríkisins með auknu framboði stafrænnar þjónustu og framfylgja umhverfissjónarmiðum eins og kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Fjársýslan og ríkisstofnanir sjá um að senda reikningana út til viðskiptavina. Þeir eru aðgengilegir í pósthólfinu á Ísland.is. Jafnframt er í boði að fá reikninga senda rafrænt í gegnum skeytaþjónustu. Reikningar eða greiðsluseðla sem verða rafrænir varða til dæmis þing- og sveitarsjóðsgjöld, bifreiðagjöld, þungaskatt, sektir, komugjöld og fleira.

Áætlað er að um 200 milljónir króna sparist á ári með því að nýta rafræna reikninga, meðal annars með lækkun prentkostnaðar og póstburðargjalda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -