Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Árni Oddur er launahæsti forstjóri landsins – Þénar á við 100 verkamenn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Launahæsti forstjóri landsins er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels. Hann er með tæplega 36 milljónir króna í mánaðarlaun. Það þýðir að hann er með 1,2 milljónir í laun, hvern einasta dag ársins. Ef launin eru skoðuð nánar er Árni Oddur vakinn og sofinn með 40 þúsund krónur á klukkustund, allan sólarhringinn og allt árið um kring. Tekjur hans koma  fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Lægstu laun í landinu eru sem nemur 300 þúsund krónum á mánuði. Árni Oddur þénar þannig á við 100 verkamenn.

Næstur í tekjuröð forstjóranna er Árni Harðarson, forstjóri Salt Investment. Hann á taslvert langt í land með að ná launum nafna síns en kmst samt ágætlega af með 26 milljónir króna á mánuði eða sem nemur 870 þúsund krónum á dag, alla daga mánaðarins. Ef miðað er við að hann vinni 10 tíma á dag, fimm daga vikunnar, er tímakaup hans um 160 þúsund krónur.

Þriðji í röð forstjóranna er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Hann er með rétt tæpar 20 milljónir króna í mánaðarlaun eða sem nemur milljón krónur á hvern virkan dag.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -