Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Eva Joly segist aldrei hafa séð hegðun eins og Björgólfs í frönskum réttarsal

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Björgólfur Þór Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, virti fyrirmæli fransks dómara að vettugi í morgun og gekk út úr réttarsal. Björgólfur er einn níu sakborninga í málinu.

Þetta kemur fram í frétt RÚV fyrr í dag og er haft eftir fréttamanni Ríkisútvarpsins sem sat þinghald. Málið snýr að starfsemi Landsbankans í Lúxemborg en bankinn er sagður hafa blekkt stóran hóp fólks. Stjórnendur bankans eru ákærðir fyrir að hafa blekkt yfir hundrað manns til að taka veðlán hjá Landsbankanum í Lúxemborg á fölskum forsendur.

Flest þeirra sem urðu fyrir miklu fjárhagstjóni eru ellilífeyrisþegar sem áttu verðmætar húseignir sem þau lögðu að veði fyrir lánunum. „Þeir fengu hluta lánsupphæðarinnar greidda út en afganginn ætlaði Landsbankinn að fjárfesta þannig að fólkið  þyrfti ekki að greiða af láninu. Blekkingarnar fælust meðal annars í því að krefjast veða fyrir allri lánsupphæðinni þótt bankinn hafi haldið stærstum hluta hennar eftir. Eftir hrun hóf slitastjórn Landsbankans í Lúxemborg að innheimta lánin sem olli mörgum fjárhagslegum erfiðleikum,“ segir í frétt RÚV frá 2017. 

Björgólfur var sýknaður í ágúst árið 2017 af en þá þegar sögðu talsmenn lántaka að ætlunin væri að vinna áfrýjun.

Nú er þinghald í áfrýjun málsins en meðal ráðgjafa þeirra sem töpuðu fé er Eva Joly, fyrrverandi ráðgjafi sérstaks saksóknara á Íslandi. Að sögn RÚV hefur Joly gjörbreytt stöðu lánshafa í málinu með þekkingu sinni á málinu. Sérstakur saksóknari er embætti sem sett var á fót til að rannsaka og sækja til saka aðila sem grunur var á að hefðu brotið af sér í aðdraganda bankahrunsins.

Í frétt RÚV er því þá lýst hvernig Björgólfur og verjendur hans löbbuðu út úr réttarsal þegar dómari hafnaði beiðni þeirra um tíu mínútna hlé.

Í samtali við RÚV segir Joly að hún hafi aldrei orðið vitni eða heyrt af því að lögfræðingar virtu orð dómara að vettugi.

- Auglýsing -

Lögmönnum Björgólfs var tilkynnti að framferði þeirra gæti haft afleiðingar og hafi verið tilkynnt til þar til gerðra yfirvalda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -