Miðvikudagur 27. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Halla Gunnarsdóttir nýr framkvæmdastjóri ASÍ

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands.

Halla er menntuð sem kennari frá Kennaraháskóla Íslands og er með M.A. próf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum frá árinu 2018. Áður starfaði hún sem skrifstofustjóri Women‘s Equality Party í Bretlandi, ráðgjafi á alþjóðlegri lögmannsstofu, aðstoðarmaður ráðherra hér á landi og blaðamaður á Morgunblaðinu.

Halla hefur víðtæka reynslu af stefnumörkun og stjórnun verkefna. Hún hefur leitt stefnumótandi nefndir á vegum stjórnvalda, meðal annars sem tengjast baráttu gegn ofbeldi og málefnum útlendinga. Hún hefur skipulagt alþjóðlegar ráðstefnur, skrifað ritrýndar fræðigreinar og fræðibók, auk þess sem hún ritaði ævisögu Guðrúnar Ögmundsdóttur og hefur gefið út tvær ljóðabækur. Halla hefur jafnframt tekið virkan þátt í félagsstörfum, bæði hérlendis og erlendis.

Halla verður góð viðbót í úrvals starfshóp Alþýðusambandsins, en verkefni hennar munu snúa að samskiptum við aðildarfélög sambandsins, stefnumótun, daglegum rekstri og starfsemi skrifstofu ASÍ auk þess að leiða faglega vinnu samtakanna. Halla hefur störf 15. apríl næstkomandi og tekur við af Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra undanfarin fimm ár. Guðrúnu eru færðar bestu þakkir fyrir gott og gjöfult samstarf og óskað velfarnaðar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -