Fimmtudagur 28. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Hildur hefur áhyggjur af skertri leikskólaþjónustu: „Eftir sitja konur gjarnan með fjölskylduvandann á herðunum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, skrifar um skerta leikskólaþjónustu í Reykjavíkurborg í pistil sinn.

Hildur segir að áform um að stytt­a starfs­tíma leik­skóla muni bitna mest á viðkvæmum hópum samfélagsins. „Þessu er formaður skóla- og frístundaráðs ósammála. Hann fullyrti, í beinni sjónvarpsútsendingu, að engar rannsóknir sýndu að skert leikskólaþjónusta gæti dregið úr framgangi kvenna á vinnumarkaði. Þar kom það,“ skrifar Hildur í pistil sinn.

Hildur segir góða leikskólaþjónusta styðja við framgang kvenna á vinnumarkaði.

„Konur taka aukið fæðingarorlof og fjarvistir þeirra frá vinnu eru lengri. Þetta sýnir opinber tölfræði og fjöldi rannsókna. Samhliða hafa hundruð barna setið föst á biðlistum síðustu ár eftir leikskólavist í Reykjavík. Hundruð foreldra komust ekki aftur á vinnumarkað í kjölfar barneigna. Illa hefur tekist að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Eftir sitja konur gjarnan með fjölskylduvandann á herðunum. Mæður taka enn á sig mesta ábyrgð barnauppeldis – því betur má fórna kvennalaunum en karlalaunum.“

Lestu pistil Hildar í heild sinni hérna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -