Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stjörnutorg Kringlunnar fær loks nýtt hlutverk í sumar en þá mun þar opna alþjóðleg veitinga- og afþreyingakeðja.

Fram kemur í fréttatilkynningu að Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnutorgs Kringlunnar frá og með sumarbyrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið landsmönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúffengra veitinga, ásamt því að skemmta sér í hátækni pílu, keppa á þar til gerðum shuffleborðum, nú og eða tekið lagið í tveimur af karaoche herbergjum staðarins – þar sem hljómgæðin verða ekkert minna en mögnuð, eins og það er orðað í fréttatilkynningunni.

Mikael Harðarson Ljósmynd: Aðsend

Samkvæmt tilkynningunni verður mikið lagt upp úr því að gera upplifun gesta sem jákvæðasta og að engu verði til sparað þegar kemur að útliti og þægingum, tækni, mat og drykk. Haft er eftir Mikaeli Harðarsyni, framkvæmdarstjóra og einum af eigendum Oche Reykjavík, að hann sé spenntur fyrir því að sjá verkenfið loks verða að veruleika:

„Við vinnum nú hörðum höndum að undirbúningi opnunar. Framkvæmdir ganga vel en það er í mörg horn að líta og til þess að setja hluti í samhengi þá verða yfir 100 myndavélar inni á staðnum til þess að festa á filmu og skilja betur hvert verið er að kasta pílunum og eins til að fylgjast með því sem er að gerast á shuffleborðunum. Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins og ýmsar nýjungar í boði sem við höfum ekki séð hér á landi áður“.

Á staðnum verða 15 pílubásar, eitt VIP herbergi, fimm shuffleborð, tvö karaókí herbergi og sæti fyrir 230 til 300 gesti í mat og drykk. Segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, mikla eftirvæntingu ríkja innan félagsins og Kringlunnar fyrir því að fá Oche í húsið.

„Opnun staðarins er stórt og mikilvægt skref í gagngerri endurnýjun á 3. hæð verslunarmiðstöðvarinnar og við fögnum því að taka þátt í verkefninu og hlökkum til samstarfsins við öfluga rekstraraðila Oche Reykjavík. Að okkar mati færir staðurinn þjónustu- og skemmtiframboð Kringlunnar á áður óþekktan og spennandi stað og það er að sjálfsögðu ekkert annað en jákvætt“. Þetta segir Guðjón Auðunsson aðspurður um væntanlegu viðbótina í Kringlunni.

- Auglýsing -


Einn af eigendum staðarins, Ágúst Reynisson, þróar matseðilinn á Oche en hann er þekktur í veitingabransanum og landsmönnum kunnur sem einn af eigendum veitingastaðanna Fiskmarkaðarins og Grillmarkaðarins. Verður rík áhersla lögð á rétti sem hægt er að deila en meðal annars verður boðið upp á tapas rétti og pítsur. Auk þeim Ágústi og Mikael eru aðrir eigendur staðarins þeir Davíð Lúther Sigurðarson og Kristján Sveinlaugsson.

Oche í Kringlunni er tíundi Oche staðurinn sem opnar á heimsvísu að því er kemur fram í fréttatilkynningunni og eru staðir keðjunnar til að mynda í Ástralíu, Dubai, Bretlandi, Svíþjóð og Noregi. Troy Warfield, forstjóri The Social Gaming Group, félagsins sem á einkaleyfið fyrir Oche vörumerkinu, er að vonum glaður með áformin, segir í tilkynningunni.

- Auglýsing -

„Það er okkur ánægjuefni að koma inn á íslenskan markað og ég á ekki von á öðru en að Oche eigi eftir að gleðja Íslendinga og þá gesti sem landið sækja. Það verður spennandi að sjá staðinn rísa í Kringlunni enda staðsetningin frábær og öll plön íslensku samstarfsaðilanna um útlit og starfsemina einnig. Við bjóðum íslensku sérleyfishafana velkomna í alþjóðlega Oche teymið og alla hjá Oche Reykjavík, Reitum og Kringlunni einnig.  

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -