Fimmtudagur 16. maí, 2024
7.8 C
Reykjavik

Bendir á grein í stjórnarskránni sem fæstir vita um: „Ég hef fengið allskonar spurningar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Helga Vala Helgadóttir bendir á grein í stjórnarskrá um forsetaembættið, sem fæstir vita af.

Lögmaðurinn og fyrrverandi þingkonan Helga Vala Helgadóttir skrifaði færslu í dag þar sem hún bendir á grein um embætti forseta Íslands, sem finna má í stjórnarskránni, sem fæstir hafa heyrt um.

„Þá hefur Landskjörstjórn metið 11 framboð gild svo lýðræðisveislan getur hafist fyrir alvöru. Vitanlega eru línur örlítið að skýrast með efstu frambjóðendur miðað við kannanir en það getur samt allt gerst enda höfum við í raun sáralítið heyrt frá þeim sem eru að gefa kost á sér í þetta mikilvæga embætti.“

Þannig hefst færsla Helgu Völu en í næstu setningum segir hún: „Það væri til fyrirmyndar ef stjórnmálastéttinni væri meira umhugað um að gera nauðsynlegar breytingar á forsetakaflanum en að standa vörð um nýtingu fárra á auðlind þjóðarinnar. Þá værum við til dæmis með það alveg skýrt hvaða völd forsetinn hefur.“

Segist lögmaðurinn hafa fengið ýmar spurningar síðustu vikurnar, um hlutverk forsetans en að engum hafi hvarflað að því að forsetinn geti veitt undanþágu frá lögum, en það stendur einmitt skýrum orðum í stjórnarskránni:

„Ég hef fengið allskonar spurningar á undanförnum vikum, allt frá því hvort hann geti einn og sér rofið þing, hvort þingið geti sett hann af, hvort hann geti að eigin frumkvæði vikið manni úr embætti sem hann hefur sett í embætti og hvort það sé rétt að hann geti ákveðið að veita undanþágu frá lögum, samkvæmt reglum sem farið hefur verið eftir hingað til.

- Auglýsing -

Nú sagði ég ósatt – það hvarflar ekki að nokkrum manni að þetta síðastnefnda sé í stjórnarskrá, en það er engu að síður þannig.“

Hér má lesa 30gr. stjórnarskrárinnar:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -