Laugardagur 27. apríl, 2024
6.8 C
Reykjavik

Gagnrýnir skemmtiferðaskip harðlega: „Eru þetta kannski skammvinn gróðarsjónarmið sem ráða för?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það er alltaf ágætt að fá afsökunarbeiðni en miklu betra væri þó skýr stefna varðandi framtíð skemmtiferðaskipaþjónustu á Íslandi!“ Þetta ritaði Perla Magnúsdóttir, leiðsögumaður og fyrirlesari, á Facebook-vegg sinn í dag.

Í færslunni, sem Perla skrifar við frétt RÚV um afsökunarbeiðni eiganda skemmtiferðaskips sem mengað hefur Akureyrarbæ undanfarið með reykjarmekki sínum. Perlu er afar annt um landið og sést það vel í færslunni. Segist hún hafa menntað sig í ferðaþjónustu og unnið í greininni í 11 ár og sé því komin með fína reynslu. „Á öllum þessum árum man ég ekki eftir einum einstaklingi sem fór ósáttur frá landinu. Ekki einum!! Fólk gjörsamlega ELSKAR þetta land og vill koma aftur og aftur hingað. Eftirspurnin er gífurleg, jafnvel gígantísk, og við einfaldlega verðum að gera betur í að móta stefnu, stýra fjölda, setja reglur og VANDA OKKUR,“ skrifar Perla og spyr svo: „Viljum við í alvöru eyða þessu dýrmæta landi okkar í dagsferðamenn sem borða og sofa í mörg þúsund manna erlendum skipum, sem taka svo yfir lítil krúttleg samfélög og ferðamannastaði, og menga svona gífurlega meðan á öllu þessu stendur?! Er það í alvörunni okkar dásamlega landi fyrir bestu?“ Spyr hún ennfremur hvort um sé að ræða skammtíma gróðarsjónarmið að ræða og tekur Síldarævintýrið „Þar sem græðgi og „þetta reddast“ tók öll völd en svo reddaðist það ekki neitt!“

Að lokum hvetur Perla ráðamenn til þess að gera eitthvað í málinu, áður en það er of seint. „að er ekkert grín hvað við gætum innilega klúðrað þessu ef við vöndum ekki betur til.“

Færsluna má lesa hér að neðan í heild sinni:

„Við vitum það öll að landið okkar er EINSTAKT og mjög dýrmætt. 💎
Afhverju í ósköpunum förum við ekki með það eins og dýrgrip sem við viljum vernda?!🤯
Sjálf hef ég menntað mig í greininni og unnið við ferðaþjónustu hérlendis í 11 ár, og er því farin að öðlast smá reynslu í þessum efnum. Á öllum þessum árum man ég ekki eftir einum einstaklingi sem fór ósáttur frá landinu. Ekki einum!! Fólk gjörsamlega ELSKAR þetta land og vill koma aftur og aftur hingað. Eftirspurnin er gífurleg, jafnvel gígantísk, og við einfaldlega verðum að gera betur í að móta stefnu, stýra fjölda, setja reglur og VANDA OKKUR.🌿
Viljum við í alvöru eyða þessu dýrmæta landi okkar í dagsferðamenn sem borða og sofa í mörg þúsund manna erlendum skipum, sem taka svo yfir lítil krúttleg samfélög og ferðamannastaði, og menga svona gífurlega meðan á öllu þessu stendur?! Er það í alvörunni okkar dásamlega landi fyrir bestu?
Eða eru þetta kannski skammvinn gróðarsjónarmið sem ráða för? Kannski eitthvað sem minnir á Síldarævintýrið sem við innilega „fokkuðum upp“ þar sem græðgi og „þetta reddast“ tók öll völd, en svo bara reddaðist það ekki neitt!😵‍💫
Þið heyrið ef til vill að það er annar tónn í mér en vanalega, ég bara hreinlega get ekki setið á mér lengur.
Getum við PLÍS sett pressu á ráðamenn að gera betur fyrir framtíð landsins? Það er ekkert grín hvað við gætum innilega klúðrað þessu ef við vöndum ekki betur til.
KOMA SVO!!💪💪
P.S. Færslan er opin – deilið að vild. Við þurfum öll að hjálpast að með framtíð þessa lands og okkar stærsta geira!“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -