Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Ríkisbankinn kaupir TM tryggingar: „Styrkir rekstur bankans og gerir hann verðmætari“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsbankinn hefur fest kaup á TM Tryggingum en greint er frá þessu í tilkynningu bankans á heimasíðu hans. Vekur það óneitanlega athygli í ljósi þess að íslenska ríkið á rúm 98% í bankanum. Kaupin er þó háð ýmsum skilyrðum eins og samþykki Seðlabanka Íslands.

Hægt er að lesa alla tilkynninguna hér fyrir neðan:

Landsbankinn og Kvika banki hafa komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. („TM“) á grundvelli kauptilboðs sem bankinn lagði fram í allt hlutafé félagsins þann 15. mars sl. Möguleg kaup eru m.a. háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:
„Með því að bæta tryggingarekstri við starfsemi bankans getum við boðið viðskiptavinum okkar enn betri og fjölbreyttari þjónustu. Kaup á TM er góð fjárfesting sem styrkir rekstur bankans og gerir hann verðmætari til framtíðar, enda er TM traust tryggingafélag með gott og reynslumikið starfsfólk. Saman erum við með öfluga starfsemi um allt land og í góðri stöðu til að sækja fram. Við vitum hvernig á að veita framúrskarandi fjármálaþjónustu, eins og sést m.a. á því að við höfum verið efst á bankamarkaði í Íslensku ánægjuvoginni fimm ár í röð.“

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs Landsbankans, segir:
„Landsbankinn starfar á samkeppnismarkaði og það skiptir verulegu máli að bankinn sé áfram verðmæt eign fyrir hluthafa. Í því felst m.a. að meta og sækja tækifæri á fjármálamarkaði til að viðhalda og auka verðmæti bankans. Bankaráð og stjórnendur hafa um nokkurt skeið skoðað kosti þess að bæta tryggingum við fjölbreytta þjónustu bankans, enda fer tryggingastarfsemi og rekstur á stórum viðskiptabanka vel saman. Við teljum að með kaupum á TM muni bæði félögin eflast og styrkjast.“

Upplýsingar um tilboð og efnahag
Tilboð bankans hljóðar upp á 28,6 milljarða króna. Samkomulag um einkaviðræður gildir frá deginum í dag til 26. apríl nk. Endanleg greiðsla fyrir félagið er háð kaupverðsaðlögun á þeim degi sem bankinn tekur við rekstri félagsins.

- Auglýsing -

Um síðustu áramót voru heildareignir Landsbankans 1.961 milljarður króna og eigið fé var 304 milljarðar króna. Hagnaður bankans árið 2023 nam 33,6 milljörðum króna og samkvæmt tillögu til aðalfundar mun bankinn greiða 16,5 milljarða króna í arð á þessu ári. Ekki er gert ráð fyrir að kaupin hafi áhrif á arðgreiðslustefnu bankans, sem er að greiða a.m.k. 50% af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -