Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Seðlabankinn heldur vöxtum óbreyttum – Þrálát verðbólga

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Seðlabanki Íslands opinberaði yfirlýsingu Peningastefnunefndar rétt í þessu og var ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. „ Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%,“ segir í yfirlýsingunni frá nefndinni.

Nefndin bendir á að verðbólga hafi minnkað lítillega í síðastliðnum mánuði og mælst 6,6 prósent, en bendir á að verðbólgan sé enn vel yfir væntingum og því líkur á að hún verði áfram þrálát.

„Nýleg endurskoðun Hagstofu Íslands á þjóðhagsreikningum sýnir að hagvöxtur á síðustu árum var meiri en fyrri tölur bentu til. Spennan í þjóðarbúinu virðist því vera umfram það sem áður var talið. Áfram hægir þó á vexti efnahagsumsvifa enda er taumhald peningastefnunnar töluvert,“ kemur fram í yfirlýsingunni frá Peningastefnunefndinni.

Kjarasamningarnir litlu breytt

Þá hefur óvissan minnkað eftir undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og bundu margir vonir við að Seðlabankinn myndi lækka vexti sökum þessa.

„Spennan í þjóðarbúinu gæti þó leitt til þess að launaskrið verði meira en ella. Einnig gætu aðgerðir í ríkisfjármálum aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting,“ segir í yfirlýsingunni.

- Auglýsing -

“Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -