Fimmtudagur 16. maí, 2024
7.8 C
Reykjavik

Jónas spyr um orkumálin: „Erum við á leið í enn eina söluferðina til erlendra stórfyrirtækja?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Eru orkumálin að fara úr böndunum?“ spyr Jónas Guðmundsson, sem er fyrrverandi rektor á Bifröst í Norðurárdal.

„Hingað til hafa margir staðið í þeirri trú að orkuskiptin væru aðalviðfangsefnið í orkumálum landsmanna. Því varð undrun mín mikil á upplýsingafundi Orkuveitunnar fyrir nokkrum dögum. Þar kynnti forstjórinn nýjar áherslur, „straumhvörf í orkumálum“; við viljum „taka umræðuna lengra,“ sagði hann; laða til landsins erlend fyrirtæki til að nýta orkuna.

Annar stjórnandi Orkuveitunnar talaði um „græna orkuframleiðslu á heimsvísu“—að sjálfsögðu í „sátt við náttúruna“.

Þá fannst Jónasi „um stund ég vera kominn langt aftur á síðustu öld. Hefur þessi stefnubreyting hlotið blessun þeirra sem fara með almannavaldið, umsjónaraðila orkuauðlinda landsins og eigenda stærstu orkufyrirtækjanna? Er sátt um hana meðal helstu hagaðila?“

Bætir við:

„Það eru ekki nema 17 ár síðan hörð samfélagsátök stóðu um byggingu virkjunar á Austurlandi. Erum við á leið í enn eina söluferðina til erlendra stórfyrirtækja? Er þörf fyrir þessar framkvæmdir—þegar efnahagslífið stendur á blístri og ekkert er hægt að gera nema flytja inn til þess erlent vinnuafl?

- Auglýsing -

Rétt er að minnast þess að við höfum áður farið kollhnísa í atvinnumálum með offjárfestingu í ákveðnum greinum—við höfum meira að segja átt lítið notaðar virkjanir í langan tíma, sem er dýrkeypt ráðstöfun, eins og tveir stjórnendur hjá Landsvirkjun minntu á í nýlegri blaðagrein.“

Gðulaugur Þór.
Ljósmynd: Facebook

Jónas færir í tal að „orkumálaráðherra er tamt að tala um orkuskort. Á áðurnefndum fundi sagði hann af myndbandi: „Við erum bara á vondum stað. Og við erum eiginlega ekkert búin að gera í 15 ár í raforku, í 20 ár í hitaveitu, og það er bara komið að skuldadögum“ (upptaka er aðgengileg á https://orkuveitan.is/hrein-taekifaeri).

Ég get ekki betur séð en að hér sé um fölsun staðreynda að ræða. Raforkuframleiðsla í landinu (vatns og jarðvarma) er nú um 20 teravattstundir (TWh) á ári. Hún hefur aukist um 2,2 TWh á tíu árum, eða um 12%—þar af eru þrjár stórframkvæmdir, Búðarhálsvirkjun, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð 2; ef farið er aftur fyrir byggingu Kárahnjúkavikjunar þá hefur framleiðslan tvöfaldast. (Sjá https://ff7.is/2024/02/er-ekkert-verid-ad-framleida/).

- Auglýsing -

Varð enginn var við þessa aukningu og í hvað fór hún? Hún fór ekki nema að litlu leyti til heimilanna í landinu.“

Að mati Jónasar hafa lykilstaðreyndir varðandi orkumálin farið forgörðum:

„Orkustofnun segir í orkuspá sinni: Bein notkun raforku vegna orkuskipta verður nærri 2,4 teravattstundir (TWh) og allt að 10 TWh vegna framleiðslu rafeldsneytis árið 2050 til jafns við notkun innanlands og millilanda. Orkuskiptin munu eiga sér stað í áföngum, enda liggja ýmsar tæknilegar lausnir ekki enn fyrir, t.d. varðandi skip og flugvélar. Áætlað er að orkuskiptin nái hámarki 2050 til 2060.

Fram hefur komið að vegna rafbílavæðingar allra fólksbíla í landinu þurfi einungis að auka raforkuframleiðslu um 3%. Vitað er að flutningskerfi hamlar nýtingu þeirrar raforku sem framleidd er; í fréttum RÚV í desember kom fram að þessi sóun á raforkunni næmi 0,5-1,2 TWh, amk. jafnmikið og Kröfluvirkjun framleiðir.“

Hann segir að mikill seinagangur hafi „verið við úrbætur á flutningskerfinu, sem væntanlega er hagkvæmasti orkuöflunarkosturinn og mikilvægur fyrir orkuöryggi landsmanna—þar liggur hundurinn grafinn varðandi nokkrar fiskimjölsverksmiðjur sem ekki hafa aðgang að nægilegu rafmagni.

Það er svosem góðra gjalda vert að orkufyrirtækin athugi alla hagkvæma orkukosti fyrir framtíðna. Þau munu vera að skoða margt, ekki aðeins raforku og varmaorku (þ.á.m. lághitaorku), heldur líka sólarorku, sjávarölduorku, og vindorku. En til hvaða verkefna? Hverju má fórna til? Á hvaða tíma?“

Orkuöflunartækninni fleygir fram og ástæða virðist vera til að bíða með sum verkefni svo við sitjum ekki uppi með óhagkvæm náttröll sem þegar hafi valdið miklum skaða, segir Jónas og bætir við:

„Ákefðin virðist hafa aukist til muna og hættan blasir við. Margt bendir til að þróunin verði jafn kaótísk og orkumálaumræðan. Opinberu orkufyrirtækin eru með langan óskalista yfir nýjar virkjanir. Og nú eru einkaaðilar líka komnir á fullt. Hvað eru margar smærri vatnsvirkjanir í undirbúningi á þeirra vegum? Fyrir liggur að 34 vindmylluverkefni séu í þróun og nokkur þeirra komin til Skipulagsstofnunar. Hvert vindmylluverkefni er á við meðalstóra vatnsvirkjun. Væntanlega er það hagnaðarvon þessara einkaaðila, og þeirra erlendu aðila sem sagðir eru standa á bakvið flestar þeirra, sem knýr þá áfram. Þeir ætla sér stóran hlut af orkuauðlindum landsins. Og þeim er vorkunn; þeir þurfa lítið sem ekkert að greiða fyrir orkuna og aðrir koma til með að bera skaðann og kostnaðinn, ytri áhrifin, sem eru ekki reiknuð með í dæmin: röskunina, sjónmengunina, sárin í landinu, innviðabreytingarnar og fleira.“

Jónas nefnir að „staðsetning og umgjörð orkuframkvæmda skiptir höfuðmáli. Skipulagsstofnun hefur lagt til að vindorkuver – sé þeirra þörf – verði helst byggð á stöðum sem þegar hefur við raskað, svo sem iðnaðarsvæðum og við hafnir. Stofnunin hefur einnig hvatt til þess að mótuð verði stefna um byggingu vindmylla í hafi úti; má hugsa sér að yfirgefnar eyðieyjar kæmu til greina í því sambandi?“

Hann ljær máls á því að „samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands eru tæplega 1200 eyjar við landið og 5000 sker. En engin lög eða stefna liggur fyrir sem ná yfir þessar villtu virkjanahugmyndir. Jafnvel er verið að meta hugmyndir um vindorkuver á viðkvæmum og dýrmætum svæðum. Þannig er t.d. verið að meta 100 megavatta virkjun í Norðurdal í Borgarfirði, í einni af fallegustu sveitum landsins, í næsta nágrenni við nokkrar af mestu náttúrperlum landsins; önnur virkjun af sömu stærð mun vera í undirbúningi í sama dalnum.

Fram hefur komið að virkjanahugmyndirnar eru þróaðar í eindreginni andstöðu við nærsamfélagið í sveitum Borgarfjarðar. Samt eru þær enn á dagskrá. „Hver vill eiga og reka vind­myllu­garð við ramma andúð heima­fólks?“ spurði Bjarni Bjarnason þáverandi forstjóri Orkuveitunnar á aðalfundi Orkuveitunnar 2022. Bjarni, sem er einn fremsti sérfræðingur þjóðarinnar í orkumálum, skrifaði nokkru síðar um öll vindmylluverkefnin:

Bjarni Bjarnason.

„Verði þessi sýn að veru­leika ættum við engu umhverf­isslysi til að jafna úr Íslands­sög­unni… Hér væri reyndar ekki um slys að ræða, því myll­urnar yrðu reistar af ásetn­ingi, með fullri vit­neskju um hin víð­tæku umhverf­isáhrif.“

Full ástæða er til að hægja á frekar en að herða á í orkumálaumræðunni. Okkur hefur oft orðið dýrkeypt að fara langt á undan okkur í að leysa vanda—sem kannski er ekki til. Að mínu mati væri ástæða til að leggja afgreiðslu vindmylluhugmynda til hliðar þar til sýnt er hvort þörf verður fyrir byggingu slíkra krefjandi mannvirkja og fyrir liggur stefna sem sátt er um varðandi staðsetningar þeirra. Það er engin bráð þörf á nýjum orkufrekum og mengandi iðnaði inn í landið. Við ættum að einbeita okkur að raunhæfum hugmyndum um orkuskiptin og rannsóknum á orkukostum sem sátt verður um.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -