Söngvarinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin trúlofuðu sig í gær, laugardaginn 7. júlí. Það var fréttasíðan TMZ sem var fyrst með fréttirnar, en samkvæmt miðlinum fór Justin á skeljarnar á Bahama-eyjum.
Samkvæmt TMZ bað söngvarinn Hailey á sumarleyfisstað á eyjunum og bað öryggisverði sína um að biðja alla viðstadda að leggja símana sína frá sér þar sem eitthvað stórkostlegt væri að fara að gerast.
Hailey sagði já og var fagnað fram á rauða nótt. Faðir Justins beið ekki boðanna og birti strax mynd af syni sínum á Instagram í dag þar sem hann sagðist vægast sagt vera stoltur.
„Spenntur fyrir næsta kaflanum!” skrifaði hann einnig við myndina.
Tímaritið Us Weekly sagði fyrst frá því að Justin og Hailey væru byrjuð saman í júní á þessu ári, en parið stakk einnig saman nefjum á árunum 2015 til 2016.