Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Minnti á mikilvægi lesturs

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur var gestur á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra nú síðdegis. Hann sagði nokkur hvatningarorð á fundinum og vitnaði í þjálfarann Lars Lagerbäck sem mun hafa sagt að litlir hlutir skapi stóra sigra. Þorgrímur segir þau skilaboð eiga vel við þessa dagana.

Þorgrímur hvetur landsmenn til að taka þátt í lestrarverkefninu Tími til að lesa sem Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra, hleypti af stokkunum í upphafi mánaðar.

Þorgrímur er mikill talsmaður lesturs og segir læsi vera mikilvægt lýðheilsumál. Hann hvetur foreldra ungra barna til að virkja þau í lestri og biðja börnin um að staldra við ef þau skilja ekki þau orð sem koma fyrir í þeim texta sem þau eru að lesa og skrifa þau niður á blað. Hann segir að hægt sé að búa til leik út lestrinum.

„Þá er t.d. hægt að líma eitt nýtt orð á ísskápinn á hverjum degi og biðja börnin um að finna út hvað orðin þýða,“ sagði Þorgrímur. Hann sagði rannsóknir sýna að læsi skiptir miklu máli hvað sjálfstraust barna varðar.

Í lokin minnti Þorgrímur fólk á að rétta fram hjálparhönd til barna ef þau þurfa á aðstoð að halda. Hann segir mikilvægt að veita börnum athygli og hjálp, ekki síst núna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -