Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Samfylking með sjálfseyðingarhvöt: Ágúst Ólafur er vænsti drengur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eftir // Brynjar Níelsson

Ég hef velt því fyrir mér hvort Samfylkingin sé með innbyggða sjálfseyðingarhvöt. Henni fannst rétt að færa sig sem lengst til vinstri eftir hrunið og síðan losa sig við öflugustu liðsmennina þannig að engu munaði að flokkurinn ætti ekki lengur þingmann eftir kosningarnar 2016.

Ofstækishópur á góðri leið með að yfirtaka Samflykinguna

Nú þegar fylgið hefur aðeins hjarnað við virðist sagan ætla að endurtaka sig. Endurvakin úrelt og mannskemmandi vinstri róttækni með dólgafeminísku ívafi, eins og Jakob Bjarnar blaðamaður kallar það, sem byggist á því að allir karlar séu ofbeldismenn sem geri lítið annað en að kúga konur með andlegu og líkamlegu ofbeldi. Sýnist að sá ofstækishópur sé á góðri leið með að yfirtaka flokkinn.

Ágúst Ólafur er vænsti drengur

Nýjasta birtingarmynd sjálfseyðingarinnar er aðförin að Ágústi Ólafi. Ég þekki Ágúst Ólaf ekki mikið en þar sem ég hef meira innsæi og betri tilfinningu fyrir fólki en aðrir, veit ég að hann er hinn vænsti drengur þótt ófullkominn sé eins og við hin. Ég hef að vísu aldrei skilið þessa pólitík hans um að gera alla fjölmiðlamenn og listamenn að launamönnum hjá ríkinu og trúa því að við græðum öll svakalegan pening á því.

Hljómar álíka sannfærandi og hvert annað Nígeríusvindl.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -