Föstudagur 26. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég ligg andvaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upplifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, uppgjöf, vantrú á sínar eigin tilfinningar og upplifanir“.

Á þessum orðum hefst frásögn konu sem stígið hefur fram í opinni færslu sem fórnarlamb kynferðislegrar misnotkunar af hendi tveggja þekktra íslenskra manna og er annar hinna meintu ofbeldismanna þjóðþekktur að hennar sögn. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru þeir báðir landsliðsmenn í knattspyrnu. Hún treystir sér hins vegar hvorki til að nafngreina þá né koma fram undir nafni.

Konan segir að atvikið hafi átt sér stað árið 2010 af tveimur íslenskum mönnum en atvikið átti sér stað erlendis. Hún segist hafa verið að skemmta sér og hefur þá grunaða um að hafa sett eitthvað út í glasið sitt. „Ég ældi yfir annan þeirra í leigubílnum á leið á hótelið þeirra, svo aftur í rúmið á hótelinu en þeir létu það ekki stoppa sig og skiptust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúminu ber að neðan með ælu í hárinu, andlitinu og fötunum“.

Hún segir frá því að það fyrsta sem annar mannanna hafi sagt við hana daginn eftir hafi verið „Vóóó ekki kæra mig fyrir nauðgun“ og hló. Hún segir að þó það séu nærri liðin 11 ár frá atvikinu komi ekki sá dagur að þetta skjóti ekki upp kollinum í huga hennar. „Þetta rændi mig svo mörgu. Sjálfstraustinu, gleðinni, tækifærum og upplifunum“.

Þá segir konan að staðið hafi til að kæra mennina og hún var komin með lögfræðing, fór í skýrslutöku hjá lögreglu en hvar sem hún kom var henni tjáð það að þetta væri mjög erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér.  Hún var einnig spurð um það hvort hún væri viss um að hún vildi leggja þetta á sig. „Eftir margra mánaða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig andlega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóðþekktur í dag“.

- Auglýsing -

Konunni var ítrekað bent á að ef hún myndi kæra þá hefði það áhrif á þeirra feril, þetta myndi fara í blöðin og þá myndu allir vita af þessu. Hún segir spurningin sem sækir hvað fastast að henni frá þeim tíma þegar hún sagði frá vera:  Ertu viss ? og  athugasemdin : Þú vildir þetta en sást svo eftir því.

„Ég má segja frá, ég má bara ekki nafngreina. Mig langar ekki að burðast með þetta ein í hjartanu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer meðal fólks „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér?“ því það er ógeðslega íþyngjandi og heftandi félagslega. Ég er alltaf á varðbergi“.

Konan segir að þennan dag hafi eitthvað verið tekið frá henni sem hún mun aldrei fá aftur en að hún ætli að halda áfram að vinna í sér.

„Ég skila loksins skömminni, FOKKIÐ YKKUR !!“.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -