Föstudagur 29. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Smitum heldur áfram að fækka

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Níu hafa greinst með COVID-19 hér á landi á síðasta sólarhring og er fjöldi staðfestra COVID-19 smita hér á landi er kominn upp í 1.720. Virk smit eru 723 samkvæmt nýjustu tölum á covid.is.

161 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær og níu þeirra reyndust jákvæð. Þá voru 690 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær og ekkert smit greindist í þeim sýnum.

Samkvæmt tölum covid.is hafa 989 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mun ekki halda upplýsingafund í dag klukkan 14.00 líkt og áður.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -