Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Vilja að bann við klámi verði afnumið – Viðhorf hafi gjörbreyst

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Félagasamtökin BDSM á Íslandi sendu inn umsögn við frumvarp Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Björns Levís Gunnarssonar, þingmanna Pírata, en það var RÚV sem greindi fyrst frá.

Í áðurnefndu frumvarpi er lagt til að bann við klámi verði afnumið, enda hafi viðhorf til kynlífs gjörbreyst á þeim 153 árum sem liðin eru frá því að klám var fyrst bannað á Íslandi.

Félagasamtökin BDSM segja í umsögn sinni að of margir félagsmenn hafa of lengi glímt við sjálfsskömm vegna eigin kennda og langana; BDMS-hneigðir fólks séu sjaldan ræddar nema á neikvæðan hátt eða í einhverskonar háði; þetta eigi líka við um klám þar sem kynferðisathafnir þeirra séu oftlega taldar upp sem dæmi um ofbeldisklám.

Samtökin vilja meina að flokkun af þessu tagi sé gagnslaus; ýti undir neikvæðar staðalímyndir um BDSM; sé afar jaðarsetjandi fyrir BDSM-fólk.

Félagasmtökin telja að lög sem banni fólki að birta eða dreifa myndefni af kynlífi – jafnvel –  eigin kynlífi – sé einfaldlega tímaskekkja sem ýti undir jaðarsetningu kynlífsverkafólks og takmarki möguleika þeirra til að afla sér lífsviðurværis á öruggan og löglegan hátt.

Tekið er fram að besta mótefnið við skaðsemi kláms sé öflug kynfræðsla á öllum skólastigum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -