Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Jóhannes Haukur vill selja tvær fiðlur: „Keypt í fyrra og notað í eitt ár í Suzuki námi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einn allra besti leikari Íslandssögunnar, Jóhannes Haukur Jóhannesson vill selja fiðlu sem dóttir hans notaði í fiðlunámi sínu, í Facebook-grúppunni Hljóðfæri og græjur til sölu:

Skrifar:

„Tvær fiðlur til sölu. Keypt í fyrra og notað í eitt ár í Suzuki námi. Litla daman komin yfir á píanó.“

Líklegt má telja að fiðlurnar seljist fljótt; hver vill ekki kaupa varning af og hitta augliti til auglitis leikara sem náð hefur langt út í hinum stóra heima og er án efa á pari við íslenska leikara sem eru í úrvalsdeildinni: Leikara eins og Stein Ármann Magnússon, Hilmi Snæ Guðnason, Ólaf Darra Ólafsson, Ilmi Kristjánsdóttur, Heiðu Rún Sigurðardóttur (Heida Reed) og nokkra aðra sem skara fram úr.

Um að gera að senda Jóhannesi skilaboð og kaupa kannski aðra fiðluna eða bara báðar og fá kannski einu sjálfu með stórleikaranum og eiginhandaráritun í þokkabót; jafnvel smá spjall ef liggur vel á kappanum, sem oftast er raunin, enda toppmaður í alla staði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -