Guðmundur Magni Ásgeirsson uppljóstraði um einn gest sem verður á Bræðslunni 2023, í útvarpsþætti um helgina.
Söngvarinn góðlátlegi, Guðmundur Magni Ásgeirsson var gestur hinna eldhressu félaga Friðriks Ómars og Sigga Gunnars í föstudagþætti þeirra Félagsheimilið á Rás 2. Þar spjölluðu þeir um flest milli himins og jarðar en þáttastjórnendum tókst að draga eitt nafn á tónlistarmanni sem verður á næstu Bræðsluhátíð á Borgarfirði eystra sem Magni og bræður hans tveir halda utan um. Engan aukvisa er um að ræða heldur enga aðra en Unu Torfa sem valin var tónlistakonu ársins 2022 á Rás 2.
Una hefur heillað landan með hverjum slagaranum á fætur öðrum undanfarið ár og er hvergi nærri hætt og verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni. Já og mögulega skella sér austur á Bræðsluna í sumar.