Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Meghan var ekki hrifin af brúðkaupi Vilhjálms og Kate: „Sjáið bara æsinginn og tilstandið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þegar Vilhjálmur prins giftist háskólakærustu sinni Kate Middleton árið 2011 höfðu mjög fáir heyrt um upprennandi leikkonuna Meghan Markle. Á þeim tíma hafði Meghan engin tengsl við konungsfjölskylduna og vann hún hörðum höndum að því að landa hlutverkum í sjónvarpsþáttum. Brúðkaup Kate og Vilhjálms fór ekki framhjá neinum, þar með talinni Meghan sem hélt úti bloggi á þessum tíma.

Vilhjálmur og Kate voru glæsileg á brúðkaupsdaginn

Í blogginu skrifaði hún færslu um brúðkaupið og virtist hvorki hrifin af Kate né konungsfjölskyldunni. ,,Litlum stelpum dreymir um að vera prinsessur. Ég, fyrir mitt leyti, langaði að vera She-Ra, Princess of Power,‘‘ skrifaði hún. „Fyrir ykkur sem kannist ekki við teiknimyndatilvísun níunda áratugarins er She-Ra  tvíburasystir He-Man og konunglegur uppreisnarmaður með sverð sem er þekkt fyrir styrk sinn.‘‘

Þá sagði hún fullorðnar konur lifa í sömu fantasíu og þær gerðu sem litlar stúlkur. ,,Fullorðnar konur virðast halda þessari bernskufantasíu. Sjáið bara æsinginn og tilstandið í kringum konunglega brúðkaupið og endalausar umræður um Kate prinsessu,“ skrifaði vonsvikin Meghan að lokum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -