Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Félag eldri borgara lastar ríkisstjórnina: „Berjast af fullri hörku“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

EBAK, Félag eldri borgara á Akureyri, lastar ríkisstjórn Íslands harðlega fyrir að minnast ekkert á málefni eldri borgara í þeim „80 milljarða pakka“ sem hún setti fram á dögunum til að liðka fyrir kjarasamningum næstu fjögur ár.

Akureyri.net segir frá þessu en ályktun frá félaginu um þetta var samþykkt á aðalfundi í síðustu viku. Hljóðar hún eftirfarandi:

Fundurinn átelur ríkisstjórn Íslands harðlega fyrir það, að í þeim 80 milljarða króna pakka, sem hún setti fram til að liðka fyrir kjarasamningum næstu fjögur árin, er ekkert sérstaklega minnst á málefni eldri borgara þessa lands.

Það er öllum ljóst að stór hópur eldri borgara hefur mjög lágar tekjur og þarf sárlega að fá viðbót til að geta lifað eðlilegra lífi en hann gerir í dag.

Fundurinn telur að það ætti að vera forgangsverkefni stjórnvalda að sinna betur þeim þegnum sínum, sem hafa byggt upp það þjóðfélag, sem við búum við í dag.

Fundurinn skorar á alla eldri borgara þessa lands að standa þétt við bak Landsambands eldri borgara í þeirri miklu baráttu sem fram undan er í að ná fram réttlæti eldri borgurum til handa.

- Auglýsing -

Ennfremur skorar fundurinn á Landsamband eldri borgara að berjast af fullri hörku fyrir því að á okkur verði hlustað og stjórnvöld komi til móts við okkar óskir um að allir geti lifað sómasamlegu lífi af sínum lífeyri.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -