Birti myndband á Facebook af ljósmyndara.
Dóra Sigtryggsdóttir, íbúi í Grindavík, sakar ljósmyndara á vegum RÚV um að hafa gert tilraun til þess að brjótast inn til hennar. Dóra birti myndband fyrir stuttu á Facecbook-síðu sinni og virðist á myndbandinu að ljósmyndarinn, sem er merktur RÚV, geri tilraun til að komast inn á heimili Dóru án þess að hafa til þess leyfi. Dóra er vægast sagt ósátt við þetta. „Nú er ég reið. Þetta er ekki í lagi, fréttamenn hafa ekki leyfi til að fara inná heimilið mitt! RÚV skammist ykkar,“ sagði Dóra meðal annars í Facebook-færslu sinni.
„Það kom merktur fréttamaður heim áðan, tók myndir, reyndi að opna hurðir og leitaði svo að lykli! Lögreglan á Suðurnesjum plís gerið eitthvað í málinu.“
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan