Sunnudagur 19. maí, 2024
5.8 C
Reykjavik

Arðgreiðslur bankanna eigi að renna til félagslegra aðgerða – þeir skila nú miklum hagnaði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Ég held að það sé mjög mikilvægt að bankarnir taki þátt í því verkefni með okkur að komast út úr faraldrinum og sýni sínum viðskiptamönnum þetta svigrúm, “ þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Hún segir ennfremur að arðgreiðslur sem ríkið fær vegna bankanna eigi að renna að hluta til félagslegra aðgerða vegna faraldursins.

Hún segir lykilatriði að bankarnir sýni almenningi svigrúm og skilning, sérstaklega þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman, vegna atvinnumissis vegna faraldursins.

Aðspurð hvernig þetta verði tryggt minnir forsætisráðherra á að viðskiptaráðherra hafi sagt að hún ætli að eiga samtal við forsvarsmenn bankanna.

Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra hefur talað um að mögulega ætti að endurvekja bankaskattinn ef bankarnir finna ekki leið til að nýta hluta mikils hagnaðar til að létta undir með heimilum, sérstaklega tekjulágra og ungs fólks og fyrirtækjum. Forsætisráðherra vill að bankarnir taki þátt í enduruppbyggingunni. Þeir skili nú miklum arði.

„Þá vil ég rifja það upp að Landsbankinn er að fullu í eigu ríkisins og Íslandsbanki í meirihlutaeigu ríkisins, að þessar arðgreiðslur núna verði nýttar i mikilvægar félagslegar aðgerðir til þess að takast á við uppbygginguna að loknum faraldri og ég held að það sé mikilvægt að þessar arðgreiðslur verði að hluta nýttar til þess,“ segir Katrín Jakobsdóttir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -