Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Bakstursæði hefur gripið landsmenn – Sala á bakstursvörum aukist um 123%

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það er útlit fyrir að bakstursæði hafi gripið landsmenn þegar samkomubann tók gildi 13. mars. Sölutölur matvöruverslana gefa vísbendingu um þetta. Í svari Krónunnar við fyrirspurn Mannlífs kemur í ljós að sala á bakstursvörum hefur aukist um 123% í apríl ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Sala á bakstursvörum jókst þá um 50% í mars ef miðað er við marsmánuð í fyrra. Helstu vörur innan þess flokks eru suðusúkkulaði, hveiti, ger, lyftiduft og kökudropar.

Í svari við fyrirspurn Mannlífs til Krónunnar um hvaða áhrif samkomubannið hefur haft á innkaup landsmanna segir að um leið og samkomubannið var fyrst kynnt jókst salan á frystivörum um 55%, þá helst á frosnu fuglakjöti og fisk, og sala á niðursuðuvörum jukust um 150% á milli mánaða. Efst á þeim lista eru fiskbúðingur í dós, bakaðar baunir, tómatar í dós og túnfiskur í dós.

Bakstursvörur hafa rokið út í Krónunni undanfarnar vikur. Mynd / Hákon Davíð

Þá fóru húðvörur að seljast betur ef miðað er við febrúarmánuð, þá einna helst handsápa (230%) og spritt.

„Þegar ástandið hefur náð ákveðnu jafnvægi höfum við merkt að salan hefur færst til úr vörum sem hafa langan líftíma yfir í vörur sem skapa stemmningu inni á heimilinu,“ segir í svari við fyrirspurn Mannlífs.

Kerti, servéttur og blóm rjúka út. Og sömuleiðis allt sem snýr að pizzabakstri. „Sala á rifnum osti, pepperoni og skinku hefur aukist mikið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -