Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Erlend auglýsingastofa fær það verkefni að kynna Ísland – 1,5 milljarður úr landi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í apríl greindi Mannlíf frá markaðsherferðinni Saman í sókn, sem kynna mun Ísland sem áfangastað. Herferðin er ein af sjö aðgerðum sem kynntar voru á fyrsta viðbragðsfundi ríkisstjórnarinnar við COVID-19 10. mars. Eftir auglýst útboð, sem auk þess var sett í flýtiferli, er ljóst að erlend auglýsingastofa mun sjá um verkefnið, en niðurstöður útboðsins voru kynntar í gær.

„Það er grátlegt að hugsa til þess að þessir fjármunir og öll þessi störf eigi að fá að fljóta úr landi þegar munurinn er svona hverfandi lítill og úrslitin ákveðin af valnefnd sem augljóslega þarf að stærstum hluta að styðjast við huglægt mat,“ segir Guðmundur Pálsson formaður SÍA og framkvæmdastjóri Pipar/TBWV við Viðskiptablaðið í dag.

Segir hann ósamræmi vera milli verkefnis stjórnvalda um að velja íslenskt á sama tíma og Íslandsstofa velji erlenda auglýsingastoifa til að sinna 1,5 milljarða króna markaðssátaki um að styrkja ímynd landsins og auka eftirspurn eftir því sem áfangastaðar fyrir ferðamenn.

Ríkiskaup sendu frá sér einkunnir þeirra stofa sem voru í þremur efstu sætunum, en íslenskar stofur voru í öðru og þriðja sæti. Munur á milli efstu tveggja sæta er nánast ómarktækur.

M&C Saatchi Ltd. með 87,17 af 100 punktum, 1. sæti
Pipar Media með 86,35 af 100 punktum, 2. sæti
Brandenburg með 77,38 af 100 punktum, 3. sæti

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -