Miðvikudagur 17. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Hertar aðgerðir vegna COVID-19 á Suðureyri, Þingeyri, Flateyri og Súðavík

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í ljósi nýrra smitrakninga á norðanverðum Vestfjörðum hefur aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ákveðið að bregðast enn frekar við COVID-19 á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík með hertum aðgerðum, eins og hér greinir:

Leik- og grunnskólum á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík verði lokað frá og með morgundeginum 6. apríl 2020. Þó skulu börn á forgangslistum fá vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.
Samkomubann verði miðað við 5 manns (þetta á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili).
Fjöldi viðskiptavina í stærri versluum (>150 fermetrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.

Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir og fylgi leiðbeiingum yfirvalda.

Þeim vinnustöðum eða hópum sem telja sig þurfa undanþágu er bent á að sækja um slíkt hjá heilbrigðisráðuneytinu.

Fimm ný smit komu upp á síðasta sólarhring og tengjast þau öll norðanverðum Vestfjörðum. Smitrakning stendur yfir og beðið er niðurstöðu nokkurs fjölda sýna sem tekin hafa verið.

Ákvörðun aðgerðastjórnar frá 1. apríl um hertar aðgerðir í Bolungarvík og Ísafirði eru enn í gildi. Rauði kross Íslands veitir fólki í sóttkví og einangrun aðstoð í síma 1717. Þessi ráðstöfun er tímabundin, ætluð til að hefta COVID-19 smit.

- Auglýsing -

Fólk sem finnur til einkenna á að halda sig heima og hafa samband við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í síma 450 4500 eða á heilsuvera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá samband við lækni. Spurningum um sjúkdóminn sjálfan er mörgum svarað á covid.is.

Frekari upplýsingar um þessar reglur verða veittar í netfanginu [email protected] og á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vestfjörðum.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -