Laugardagur 27. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Guðmundur Felix býður sig fram til forseta Íslands: „Innihaldsríkt líf er ekki laust við sorgir“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur Felix Grétarsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Íslands en hann tilkynnti um það í morgun á samfélagsmiðlum sínum. Guðmundur hefur verið mikið í fjölmiðlum undanfarin ár vegna baráttu hans eftir að hann missti handleggi sína í vinnuslysi árið 1998. Árið 2021 fékk hann handleggi grædda á sig í tímamótaaðgerð og hefur hann leyft heiminum að fylgjast með lífi sínu og þeim áskorunum sem hann hefur þurft að mæta.

Hægt er að lesa framboðstilkynningu Guðmundur hér fyrir neðan:

Kæru Íslendingar. 

Ég, Guðmundur Felix Grétarsson, hef ákveðið að gefa kost á mér til kjörs í embætti Forseta Íslands 

Ég vil byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir þann ómetanlega stuðning sem þið hafið veitt mér á minni vegferð. 

Ég stend í dag á tímamótum, þar sem ég hef lokið 3 ára endurhæfingu eftir tvöfalda handaágræðslu, sem aldrei hefði verið möguleg, nema fyrir einstakan stuðning og samstöðu Íslensku þjóðarinnar. 

- Auglýsing -

Fyrir u.þ.b 20 árum stóð ég á krossgötum í mínu lífi. Ég gat haldið áfram á þeirri stefnu sem ég var og mætt óumflýjanlegum örlögum mínum eða breytt henni með því að horfast heiðarlega í augu við sjálfan mig og spyrja hver ég vildi vera og hvert ég vildi stefna. 

Það varð mér fljótlega ljóst að ef ég vildi eiga gott og innihaldsríkt líf þurfti ég að láta af sumum þeirra hugmynda sem ég hafði og tileinka mér aðrar. 

Sjálfsvorkunn yfir slæmri stöðu minni var kannski til þess fallin að afla mér samúðar en hún gerði ekkert til að koma mér á betri stað. Hvernig mér leið var vísbending um hvað mætti betur fara en ekki áttaviti til að byggja lífið á. 

- Auglýsing -

Gott og innihaldsríkt líf er ekki laust við sorgir og sársauka. Líf sem hafði þann eina tilgang að líða aðeins betur var dæmt til glötunar. En með því að nálgast lífið út frá því hvað ég gæti lagt að mörkum í stað þess hvað ég gæti fengið út úr því, reyndist lykillinn að hamingjunni. 

Það var ljóst að heimurinn og fólkið í honum var ekki að fara að aðlagast mínum óskum. Ég þurfti að byggja upp karakter út frá því sem ég taldi gott og rétt. Að vera góð manneskja er persónueinkenni, ekki dyggðarskraut. 

Með þessi gildi að leiðarljósi hóf ég þarna vegferð sem leiddi til þess að ég varð fyrsti einstaklingurinn í heiminum til að fá ágrædda tvo heila handleggi frá öxlum. 

Ferlið var langt, strangt og fullt af mótlæti. Til að ná slíku markmiði þarf maður fyrst að vita hvað maður vill, hver maður sjálfur er og láta ekki fortölur, vonleysi eða neikvæðni annarra beygja sig af braut. Axla ábyrgð á öllum sínum gjörðum og ákvörðunum. Finna sér heimili í óvissunni, gera sér grein fyrir því að maður hefur iðulega rangt fyrir sér og vera tilbúinn að hlusta. Læra af 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -