Sunnudagur 19. maí, 2024
4.8 C
Reykjavik

Lögreglan veitir aðgang að Grindavík í dag: „Fólk mæti ekki nema búið sé að hafa samband við það“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu sem hægt er að lesa hér fyrir neðan:

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um eftirfarandi aðgang íbúa að Grindavík í dag 15. nóvember.

Eingöngu fyrir íbúa sem hafa ekki komist inn á svæðið.

Innkomuleiðir fyrir íbúa Grindavíkur verða tvær í dag:

  1. Um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fær fólk frekari leiðbeiningar. Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall. Þessi aðkomuleið er ætluð íbúum við eftirtaldar götur:

Efrahóp, Austurhóp, Miðhóp, Víðgerði, Austurvegur, Hópsvegur, Hópsbraut, Lóuhlíð, Mávahlíð, Spóahlíð, Fálkahlíð, Brattahlíð, Austurvegur og Þórkötlustaðahverfi í heild sinni..

  1. Um Grindavíkurveg, en sú aðkomuleið er einungis ætluð  íbúum á völdum götum í norðvesturhluta Grindavíkur.  Verið er að hringja í íbúa við þær götur og úthluta þeim tíma og leiðbeina um framkvæmdina. Viðkomandi íbúar fara í björgunarsveitarbifreiðum frá söfnunarstað við Grindavíkurveg að heimilum í Grindavík og til baka.

Til athugunar fyrir íbúa:

- Auglýsing -

             Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara

             Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili

             Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað

- Auglýsing -

             Munið eftir húslykli

             Búr fyrir gæludýr ef þörf er á

             Poka eða annað undir muni

             Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.

             Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.

             Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk

             Mjög mikilvægt er að allir sem koma að þessari aðgerð hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk.

Áætlunin getur breyst án fyrirvara, en þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglu. Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -