Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt dagbók hennar.
Lögreglu barst tilkynning um yfirstandandi innbrot á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Þegar lögreglan mætti á vettvang kom í ljós að um mikinn misskilning væri að ræða en „innbrotsmennirnir“ voru starfsmenn veitingastaðarins að þrífa staðinn.
Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni og slys þar sem kona nokkur hafði dottið niður nokkrar tröppur.
Í Kópavogi barst svo tilkynning um ógnandi mann á hóteli en lögreglan mætti á vettvang og spjallaði við manninn. Hann kannaðist hins vegar ekkert við ógnandi hegðum. Lofaði hann þó lögreglu að vera rólegur.