Föstudagur 19. apríl, 2024
1.8 C
Reykjavik

Íslandsbanki lokar útibúum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslandsbanki lokar útibúum á Granda og Höfða á næstunni, og eftir það mun aðeins eitt útibú bankans vera opið í Reykjavík, og alls þrjú á höfuðborgarsvæðinu.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá bankanum, þar sem sagt er að bankaþjónusta hafi breyst mikið á undanförnum árum. Þá hafi kórónuveirufaraldu­inn flýtt þessari þróun á síðustu misserum, auk þess sem notkun bankaþjónustu í appi hafi margfaldast.

Útibúið á Suðurlandsbraut verður það eina eftir í Reykjavík, og einnig verður afgreiðsla í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Smáranum, og í útibúinu í Strandgötu í Hafnarfirði.

Í samtali við Mbl segir Edda Hermannsdóttir upplýsingafulltrúi Íslandsbanka að lokanir útibúanna hafi ekki uppsagnir í för með sér, heldur verði starfsfólk fært til í útibúið á Suðurlandsbraut og í aðalstöðvarnar. Heimsóknum í útibú bankans hafi fyrstu dagana eftir opnun eftir kórónuveirufaraldurinn hefur fækkað um 70% að sögn Eddu, miðað við sama tíma í fyrra.

Þjónusta við lítil- og meðalstór fyri­tæki á höfuðborgarsvæðinu verður frá og með 8. júní sameinuð í eina Fyrirtækjamiðstöð í Norðurturni, höfuðstöðvum Íslandsbanka.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -