Fimmtudagur 25. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Segir „sprengingu“ hafa orðið í sölu á málningu og gólfefnum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsmenn sitja greinilega ekki auðum höndum heima í samkomubanni heldur nýta margir tímann í að dytta að heimilinu, breyta og bæta.

Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, sagði í morgun í samtali við morgunútvarp Rásar 1 að útbreiðsla COVID-19 hafi haft margvísleg áhrif, meðal annars þau að fólk er að breyta og bæta heima hjá sér í auknum mæli.

„Fólk hefur verið meira heima við og verið töluvert í framkvæmdum,“ sagði Árni. Hann segir „sprengingu“ hafa orðið í sölu á málningu og gólfefni, t.d. flísum og greinilegt að margt fólk nýti tímann í að taka heimilið í gegn. „Fólk situr greinilega ekki auðum höndum heima,“ sagði Árni.

Hann segir mikla aukningu hafa orðið í vefverslun Húsasmiðjunnar, salan hefur þrefaldast á milli ára ef miðað er við það sem af er aprílmánaðar að sögn Árna. Hann segir „vorhug“ kominn í fólk og að pallaefni rjúki út. Sala á pallaefni er 50% meiri ef miðað er við sama tíma í fyrra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -