Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Svandís reynir sættir í skugga vantrauststillögu: „Enginn illur ásetningur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Álit umboðsmanns Alþingis hefur verið mér mikið umhugsunarefni. Bæði sem stjórnmálamaður og embættismaður. Það er hverjum ráðherra þungbært þegar álit umboðsmanns leiðir í ljós að ráðstafanir séu ekki eins og best verður á kosið,“ skrifar Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra á Facebook í morgun um þá stöðu sem upp er komin vegna áfellisdóms umboðsmanns Alþingis varðandi hvalveiðibann ráðherrans.

Vantraust í dag

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur boðað vantraust á ráðherrann í dag. Sá skuggi vofir yfir Svandísi sem viðurkennir nú að reglugerð um hvalveiðar hafi ekki  „átt sér nægilega skýra stoð í lögum eins og atvikum var háttað í júní“.
„Að baki útgáfu reglugerðarinnar á sínum tíma var enginn illur ásetningur. Mér gekk ekkert annað til en að fara að lögum og þar á meðal og ekki síst mikilvægum lögum frá 2013 um að okkur beri að koma vel fram við dýr,“ skrifar Svandís.

Ráðuneytið lagði til bann

Hún segist hafa verið í afar þröngri stöðu í tíma og rúmi þegar hún fékk í hendur álit fagráðs um dýravelferð sem taldi að veiðar á hval gætu ekki samræmst dýravelferðarlögum. Hún segist hafa falið ráðuneyti sínu að gera tillögur að viðbrögðum. „Ég fór þá að öllu leyti að ráðgjöf ráðuneytisins og undirritaði reglugerð um frestun á upphafi vertíðarinnar þar sem unnt væri að nýta tímann til að m.a. kanna tillögur leyfishafans um það hvort og þá hvernig bæta mætti framkvæmdina. Ég hef ekki enn heyrt þá rödd sem telur að það sé réttlætanlegt að stunda ómannúðlegar veiðar á hvölum,“ skrifar hún og segir að umboðsmaður taki raunar undir það að málefnalegt geti verið að líta til sjónarmiða um dýravelferð.
„En nú er álit umboðsmanns komið fram og ég hlusta á þau sjónarmið sem þar koma fram og tek þau til mín. Ráðuneyti mitt hefur rýnt álitið og lögfræðileg niðurstaða þess er sú að það gefi ekki tilefni til sérstakra viðbragða,“ skrifar Svandís og segir að álit ráðuneytisins sé í samræmi við niðurstöðu umboðsmanns, en hann beinir ekki sérstökum tilmælum um úrbætur til sín, umfram það að hafa sjónarmiðin sem fram koma í álitinu í huga til framtíðar.

Umboðsmaður mikilvægur

Ráðherrann sýnir sáttfýsi og segist engu að síður hafa ákveðið að fela óháðum aðila að fara yfir stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða, þ.m.t. alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins, og valdheimildir stjórnvalda á þeim grundvelli. Álitsgjafi verði jafnframt beðinn um að gera tillögur að úrbótum eftir því sem við á, og eftir atvikum tillögur að breytingum á lögum.
Þá hefur hún ákveðið að fela ríkislögmanni að leggja mat á framkomið erindi Hvals hf. þar sem félagið óskar eftir viðræðum við ríkið um mögulegt uppgjör vegna álitsins.
„Ég gríp til þessara skýru viðbragða í ljósi þess að mikilvægt er að stjórnvöld beri virðingu fyrir eftirlitsstofnunum og sýni það í verki. Umboðsmaður Alþingis gegnir mikilvægu hlutverki í eftirliti með stjórnsýslu ríkisins í okkar lýðræðissamfélagi,“ skrifar Svandís.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -