Laugardagur 27. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Freistandi og falleg eldhús í aðalhlutverki

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Nýtt tölublað Húsa og híbýla er komið út. Veggfóður eru eitt heitasta trend ársins og því kíktum við í innlit til Kristjönu S. Williams í Suður-Frakklandi sem er sannkölluð veggfóðursveröld. Kristjana er þekkt fyrir hönnun sína á ævintýralegum veggfóðrum og prýðir hús hennar forsíðuna að þessu sinni.

 

Við kíktum í heimsókn til Guðrúnar Láru en hún býr ásamt fjölskyldu sinni í gamla Vesturbænum. Síðustu ár hefur hún tekið heimilið í gegn og fært það í litríkan búning og sýnum við fyrir og eftir myndir.

Katrín Ísfeld, innanhússarkitekt, hannaði smekklegt hús í Hafnarfirði þar sem þarfir íbúanna voru hafðar að leiðarljósi en töluverðar breytingar voru gerðar á húsinu. Hlýlegir litatónar og hugguleg stemning eru þar allsráðandi.

Við heimsóttum Margréti Einarsdóttur, keramiker, sem á gullfallegt og listrænt heimili í Vesturbænum þar sem franskir gluggar setja sterkan svip á heimilið ásamt náttúrulegum litatónum.

Innanhússarkitektar sýna okkur eldhús sem þeir hafa hannað og gefa lesendum góð ráð varðandi hönnun á slíkum rýmum.

Innanhússarkitektar gefa lesendum góð ráð varðandi hönnun á eldhúsrýmum.
Mynd / Unnur Magna

Nýjustu trendin er einnig að finna í blaðinu en við kíktum á stærstu hönnunarsýningu ársins, Maison et Objet í París.

- Auglýsing -

Kærleikskeðjan heitir verkið sem prýðir póstkortið en Örn Tönsberg hannaði kortið. Örn er þekktur fyrir fallega veggjalist sem hefur sett sterkan svip á borgina.

Þetta og margt fleira í nýjasta Hús og híbýli.

Tryggðu þér áskrift að Hús og Híbýli í vefverslun

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -