Laugardagur 20. júlí, 2024
12.8 C
Reykjavik

Vandræði Stefáns

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri er í vanda á nokkrum vígstöðvum. Hann er á útleið ef marka má yfirlýsingar hans í Bítinu á Bylgjunni og mun ekki sækja um framlengingu á starfssamningi sínum. Ýmsir telja að þá stöðu hans megi rekja til byrlunarmáls Páls Steingrímssonar skipstjóra þar sem Ríkisútvarpið kom við sögu við að afrita síma skipstjórans á meðan hann lá á sjúkrabeði. Lykilstjórnendur Rúv eru grunaðir um aðkomu að málinu og Stefán ber ábyrgð á sínu fólki.

Nú er hann enn kominn í vandræði. Yfir 3000 manns hafa skorað á Ríkisútvarpið að hætta þátttöku í keppninni ef Ísrael verði áfram inni. Stefán var afdráttarlaus þegar hann studdi á sínum tíma þá ákvörðun að vísa Rússum úr Eurovision-keppninni vegna stríðs þeirra við Úkraínumenn. „Við telj­um það óá­sætt­an­legt að Rúss­ar taki þátt í Eurovisi­on,“ sagði Stefán.

Útvarpsstjórinn tekur allt annan pól í hæðina þar sem kemur að því að henda Ísraelsmönnum úr keppninni vegna stríðsins við Palestínumenn. Hann talar tungum tveimur og segir í viðtali við Rúv að stofnun hans eigi ekki að taka pólitíska afstöðu í keppninni. Þar með er hann kominn í mótsögn við sjálfan sig.

Sú hugmynd hefur komið fram að íslenskir listamenn hafni þáttöku í keppninni og sýni þannig mannúð í verki og taki völdin af útvarpsstjóra …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -