Sunnudagur 28. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Framtíðarsýnin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Árið er 2065 og nýbúið að taka til í hreinsunareldinum, enda eldgosatímabili nýlokið á Reykjanesi og Grindvíkingar búnir að kaupa upp alla stiga í Byko.

Sótugar konur híma í biðröð við Golden Gate. Það er útsynningsþræsingur og nepja íonum.

Lykla Pétur spyr hverja og eina: „Hvað gerðir þú af þér gæskan, úr því að þú þurftir að ferðast „transfer“.“

„Ég skemmdi golfvöll,“  svarar ein. „Ó, súffagetta, gakk inn í dýrðina,“ segir Pétur.

„Ég mölvaði rúðu á parlamenti,“ svarar sú næsta. – „Ó súffagetta, gakk inn….“ segir Pétur.

„Ég rak séra Gunnar úr Digraneskirkju,“ svarar sú þriðja. – Nú verður vandræðaleg þögn. „Augnablik,“ segir Sánktí, ég ætla að spyrja Gunnar, svo sjáum við til hvað við getum gert, hann er hér inni sko, …ehe, sennilega þarftu svo að fara í gegnum tollinn, …skanninn segir þig líka vera með evrur og eitthvað fljótandi, það gengur náttúrulega ekki….“ „Biðflokkur strákar!“ Stimpilhljóð heyrist.

- Auglýsing -

Konurnar í biðröðinni tvístíga og berja lóminn í kuldanum. 

„Hvenær ætli þeir komi á sjálfsafgreiðsluhliði hér,“ heyrist ein tauta.

Skírnir Garðarsson ritaði…

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -