Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt.
Brotist var inn í tvær verslanir í miðborginni í gærkvöldi. Þá var þriðja innbrotið tilkynnt að ganga níu í gærkvöldi. Þegar lögregla kom á vettvang var einn ofurölvaður einstaklingur handtekinn. Gat hann ekki gefið deili á sér og gistir nú fangageymslu lögreglu.
Skömmu seinna var einstaklingur með töluvert magn af fíkniefnum í fórum sínum handtekinn.
Nokkuð var um ölvunarakstur, slagsmál og umferðaróhöpp og varar lögreglan við næturfrosti nú þegar veturinn er skollinn á og biðlar til ökumanna að haga hraða eftir aðstæðum.
Ekið var aftan á lögreglubíl sem hafði verið að stoppa annan, með þeim afleiðingum að lögreglubíllinn kastaðist áfram og á bílinn fyrir framan svo úr varð þriggja bíla árekstur. Minniháttar slys urðu á fólki.
Ungur ökumaður, 17 ára gamall, var tekinn á 119 kílómetra hraða, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80. Vegna ungs aldurs ökumannsins var haft samband við foreldra hans.