Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

„Það mætti segja að það verða tvær fæðingar í haust”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjana Rut var að senda frá sér lagið Ég Horfi Fram Á Við en það fjallar um að festast ekki í fortíðinni og að einbeita sér að því sem er framundan er.

„Ég samdi lagið um persónulega reynslu þegar ég varð fyrir mörgum og erfiðum áföllum í lífinu og tók þá ákvörðun að halda áfram og skilja það allt eftir í fortíðinni, þar á meðal fólkið sem stóð ekki með mér,” segir Sjana.

Lagið hefur fallegan boðskap og geta eflaust margir tengt við hann. Ég Horfi Fram Á Við er annað lagið sem hún gefur út af hennar fyrstu sólóplötu sem kemur út í haust.

Hitt lagið nefnist Hjartsláttur en það kom út í maí og er tileinkað litla krílinu sem Sjana og unnustinn hennar eiga von á í september.

„Það mætti segja að það verða tvær fæðingar í haust! Fæðingin á plötunni minni og litla prinsinum mínum!”

Í kjölfar útgáfu plötunar mun Sjana halda sína fyrstu útgáfutónleika 22. nóvember í Salnum í Kópavogi. Miðasala hefst á Tix.is í ágúst.

- Auglýsing -

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -