Fimmtudagur 16. maí, 2024
6.8 C
Reykjavik

Auður lést í gær

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Auður Haralds rithöfundur lést á Landspítalanum í Fossvogi í gær eftir stutt veikindi. Hún var 76 ára. Hún fæddist í Reykjavík 11. desember 1947. Hún starfaði sem blaðamaður, þýðandi, útvarpskona og pistlahöfundur og sinnti verslunar-, skrifstofu- og verksmiðjustörfum.

Fyrsta skáldsaga Auðar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, kom út árið 1979. Bókin naut mikilla vinsælda og og opnaði umræðu í samfélaginu um heimilisofbeldi og kvennakúgun. Auður var einstaklega kjarnyrt og setti ný viðmið í skrifum sínum.

Auður fylgdi þeirri bók eftir með bókinni Læknamafían, lítil pen bók, sem út kom 1980, þar sem ráðist er að fjandsamlegu kerfi og hvunndagshetjan berst áfram gegn kvenfjandsamlegum viðhorfum. Hlustið þér á Mozart? kom út 1982 en verkið er íronísk ádeilda á innantómt líf heimavinnandi húsmóður sem les formúlukenndar ástarsögur til að drepast ekki úr leiðindum. Síðar gerði Auður makalaust grín að þeirri bókmenntategund í Ung, há, feig og ljóshærð sem er paródía á slíkar ástarsögur.

Auður lætur eftir sig þrjú uppkomin börn, Ösp, Símon og Daníel og þrjú barnabörn. Dóttir Auðar, Sara María, lést árið 2019,“ segir í tilkynningunni.

Greint er frá andlátinu í tilkynningu frá Rithöfundasambandi Íslands.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -