Þriðjudagur 19. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Bláa lónið segir upp 164 starfsmönnum: „Þungbær en óhjákvæmileg aðgerð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

164 starfsmönnum Bláa lónsins var sagt upp í dag, fengu þeir tilkynningu um uppsögnina símleiðis og var uppsögnunum síðan fylgt eftir með tölvupósti.

Í febrúar störfuðu 764 starfsmenn hjá fyrirtækinu, en starfsmenn verða um 600 eftir uppsagnirnar í dag.

Bláa lónið lokaði 23. mars vegna kórónuveirufaraldursins, til 30. apríl hið minnsta. Lokunin nær til starfsemi Bláa lónsins, fyrirtækisins í Svartsefni auk verslana á Laugavegi og á Keflavíkurflugvelli.

Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins sendi tilkynningu til starfsmanna í dag, þar sem hann segir aðgerðina þungbæra en óhjákvæmilega í ljósi aðstæðna.

Áætlað er að rúmlega 400 starfsmönnum verði boðið að nýta sér tímabundin úrræði um hlutastörf þar sem Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir hluta launa á móti fyrirtækinu.

Tilkynning Gríms fylgir hér á eftir orðrétt:

- Auglýsing -

„Kæru samstarfsfélagar

Mér þykir mjög leitt að tilkynna ykkur að nú í morgun þurftum við að ráðast í uppsagnir hjá Bláa lóninu. Aðgerðin er okkur þungbær en óhjákvæmileg í ljósi aðstæðna. Alls nemur fækkunin 164 starfsmanni. Fjöldi starfsmanna eftir þessar aðgerðir verður um 600.Það er alltaf erfitt að sjá á eftir góðum samstarfsfélögum. Eins og áður hefur komið fram erum við að glíma við fordæmalausar aðstæður sem dundu nánast yfir okkur á einni nóttu.

Ég vil þakka öllum þessum starfsmönnum, sem nú hverfa frá fyrirtækinu, fyrir frábær störf og það er einlæg von mín að leiðir okkar geti legið saman að nýju þegar Bláa Lónið er komið aftur á full skrið.

- Auglýsing -

Það er ljóst að skammtímaáhrif Covid-19 heimsfaraldursins eru gríðarleg en hver þau verða á framtíðarrekstur félagsins er óljóst að svo stöddu. Þessar aðgerðir eru liður í því að vernda, eins og kostur er, þau störf sem eftir standa hjá félaginu og jafnframt tryggja rekstur Bláa Lónsins til framtíðar.

Í ljósi þessara miklu áhrifa munum við einnig þurfa að horfa til úrræða ríkisstjórnarinnar hvað varðar að bjóða starfsmönnum, tímabundið, hlutastarf í stað fulls starfs þar sem at-vinnuleysistryggingasjóður kemur til móts við starfsmenn með bótagreiðslum. Vegna þessa úrræðis munu starfsmenn annað hvort hafa heyrt í sínum yfirmanni í dag eða þá fá sent skjal á morgun, föstudag, þar sem boð um skert starfshlutfall kemur fram og óskað er rafrænnar undirritunar, samþykki starfsmaður að ganga að því boði. Svo öllum sé það ljóst, tel ég skylt að taka fram, að þetta úrræði mun skerða laun starfsmanna tímabundið.

Stjórnendur munu svara þeim spurningum sem upp kunna að koma í tengslum við þessa aðgerð. Það er mikilvægt að við höfum það öll í huga að þessar aðstæður eru tímabundnar og við vonumst til að starfsemin komist í eðlilegt horf sem allra fyrst.

Ég hef fulla trú á því að við munum komast í gegnum þennan skafl saman. Á tímum sem þessum er mikilvægt að við stöndum þétt saman og hjálpumst að við að byggja upp góðan vinnustað til framtíðar.

Með þökkum og góðri kveðju,
Grímur“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -