Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið þrjá til bana í skotárás í háskólanum í Nevada í gær er prófessor. Árásarmaðurinn, Anthony Polito(67), er sagður hafa sótt um prófessorstöðu við skólann en ekki verið ráðinn. Þá er hann sagður hafa gengið inn í skólann, vopnaður skammbyssu, og hafið skothríð.
Árásin hófst á fjórðu hæð skólans en tveir lögreglumenn á vettvangi brugðust við og skutu Anthony til bana. Fjórir nemendur voru lagðir inn á spítala með slæm kvíðaköst og tveir lögreglumenn hlutu minniháttar meiðsl. Háskólasvæðinu var lokað strax eftir að tilkynning barst um árásina og rýmdi lögregla bygginguna fljótt og örugglega.
Rannsókn málsins er á grunnstigi og hefur ekki verið greint frá nöfnum þeirra sem létust í árásinni. Prófessorinn hafði áður starfað sem dósent í rúm fimmtán ár við East Carolina University frá árunum 2001 til 2017.