Karlmaður í Philadelphia lést í gærkvöldi þegar hann lenti undir lest.
Undanfari þessa hræðilega slyss var sá að maðurinn sem lést var að rífast við annan mann á lestarstöðinni, sem er staðsett rétt hjá Pennsylvaníuháskóla, og byrjuðu þeir að slást rétt við lestarteina á stöðinni. Maðurinn sem lést var kýldur í andlitið og við það missti hann jafnvægið og datt á lestarteinana. Nánast um leið og hann datt á lestarteinana kom lest inn á stöðina og keyrði yfir manninn. Fólk sem varð vitni að atvikinu öskraði af ótta og hlupu margir til að reyna sjá hvort það var í lagi með manninn en svo reyndist ekki vera.
Ekki liggur fyrir ástæðan fyrir slagsmálum mannanna. Lögreglan sagði við fjölmiðla að maðurinn hefði látist á vettvangi og að einn hafi verið handtekinn vegna málsins. Málið er rannsakað sem manndráp.
Hægt er að horfa á myndband af atvikinu hér en varað er við efni myndbandsins.