Lögreglan á Suðurnesjum segir frá því að hundur hafi verið að atast í grindvískum köttum:
„Það er ekki að spyrja að því þegar okkur vantar aðstoð…eigandinn er á leiðinni að sækja prakkarann.“
Einnig að „okkur vantar íslenskt orð fyrir “ride along.” En þessi ferfættlingur var að hrella ketti í Grindavík laust eftir miðnætti og er hann ómerktur. Hann vildi ólmur taka gott eftirlit með okkar mönnum og vildi, að við höldum, tryggja að allir kettir í Grindavík væru farnir inn að sofa.“
Að lokum nefnir lögreglan að „þar sem hann er ekki á launaskrá hjá okkur þá ætlum við bara að reyna að koma honum heim. En svona til að byrja með þá verður hann í góðu yfirlæti á lögreglustöðinni í Grindavík.“